afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég þakka þau svör sem eru fram komin og vænti meira hér í seinna svari ráðherra. Ég held að það sé ástæða til að minna okkur á að þó að við séum á réttri leið út úr faraldrinum er samt staðan sú að fyrir tveimur vikum síðan voru 332 milljón Covid-smit staðfest í heiminum, og er þá ekki allt talið, eins og við vitum. 5,5 milljón dauðsfalla er búið að rekja beint til Covid. Þetta er samkvæmt tölum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Þetta eru hrikalegar tölur, auk þess sem víða í heiminum skortir verulega á að utan um þetta sé haldið. Bara fyrir tveimur vikum síðan höfðu á einni viku orðið 21.000 dauðsföll vegna Covid bara í Ameríku og Evrópu. Við erum á réttri leið en þetta er samt veruleikinn. Faraldurinn er engan veginn genginn yfir þó að farið sé að rofa til. Löndum hefur gengið misvel að höndla stöðuna undanfarin misseri samfélagslega og efnahagslega og standa vörð um líf og heilsu fólks. Við höfum fulla ástæðu til að vera stolt af framlínufólkinu okkar, heilbrigðisstarfsfólki, kennurum, leikskólakennurum og öðrum sem staðið hafa vaktina, forystu stjórnvalda og ekki síður samstöðu stjórnvalda, ríkisstjórnar og heilbrigðisráðherra, sem hefur reglulega undanfarin misseri rætt þessi mál hér á þessum stað, svo því sé haldið til haga, og núverandi heilbrigðisráðherra heldur hér áfram þeim góða sið. Við höfum farið farsællega í gegnum síðustu misseri, þennan faraldur. Þarna hefur þjóðin staðið saman og það hefur skipt öllu. Því er það svo að úthaldið á síðustu metrunum skiptir máli og ég vona að okkur farnist vel í að stíga rétt og varfærin skref alla leið nú þegar samfélagið færist vonandi í eðlilegra horf á næstu mánuðum.