afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bjarna Jónssyni fyrir innleggið og get tekið heils hugar undir þau orð hans hér að við förum skynsamlegu leiðina út á næstu dögum og vikum og förum ekki fram úr okkur. Af því að hv. þingmaður hóf fyrri ræðu sína á því að vísa í Evrópuráðsþingið þá erum við auðvitað að fylgjast mjög vel með til að mynda afléttingaráætlunum á öðrum Norðurlöndum. Þar vara vísindamennirnir líka við því að það kunni að vera farið of hratt í afléttingar. Það er sama álagið á heilbrigðisþjónustu og aðra innviði og við fylgjumst mjög vel með þessu. Ég held að það hafi verið mjög farsælt skref sem þingið tók hér með breytingum á sóttvarnalögum að kalla eftir skýrslu og þéttu samtali við heilbrigðisráðherra og samtali þar um við sóttvarnalækni. Velferðarnefnd hefur síðan hitt reglubundið sérfræðingana okkar sem við felum mikið vald, eðli máls samkvæmt, varðandi nokkuð sem krefst svona mikillar sérfræðiþekkingar, en við þurfum líka að treysta á það. Það sama gildir um bólusetningarnar. Auðvitað eru hér ýmsir öryggisventlar þegar við tökum upp ný lyf, m.a. bólusetningarlyf til að verjast sjúkdómum, að undangengnum rannsóknum og umfjöllun Lyfjastofnunar Evrópu og Lyfjastofnunar hér á landi. Sóttvarnalæknir metur þetta í samtali og samvinnu við sóttvarnaráð og helstu smitsjúkdómasérfræðinga og tekið er betur utan um það í drögum að frumvarpi sem er í samráðsgátt. Ég vil síðan enda þetta á því að það er mjög mikilvægt að við tryggjum aðkomu þingsins að þessum málum öllum.