afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Mér fannst pínulítið táknrænt að hlusta á niðurlag ræðu hv. þm. Bjarna Jónssonar hér rétt áðan. Þar kristallaðist það sem mér hefur stundum fundist vera málið í þessu. Það virðist vera þannig að það eigi að þakka ríkisstjórninni allt sem vel hefur verið gert og vel hefur tekist til í þessum faraldri. Það er ekki svo. Við þökkum fyrst og fremst heilbrigðisstarfsfólkinu okkar. Við þökkum þjóðinni fyrir hafa sýnt samstöðu þrátt fyrir að skilaboð frá ríkisstjórninni hafi verið ákaflega þversagnakennd og engin samstaða um hluti þar eins og við þekkjum mætavel. Við erum að ræða hér um afléttingaráætlun. Mér finnst alger ofrausn að kalla þetta áætlun eða afléttingaráætlun. Þetta var gert síðast ákaflega svipað og áður, það var tilkynnt um afléttingar og svo sagt að til frekari aðgerða yrði síðan gripið eftir þrjár vikur, mögulega fyrr. En það var rosalega lítið útskýrt fyrir okkur hvernig ætti að gera það. Það er ekkert um það hvers konar skref eigi að stíga þannig að þeir sem hafa orðið fyrir búsifjum og eru enn þá mjög aðþrengdir vegna þeirra takmarkana sem eru geti gert einhverjar áætlanir. Við getum nefnt skólafólk í því samhengi. Við getum nefnt fyrirtækjaeigendur, svo ekki sé talað um þá sem reka veitingastaði, sviðslistafólk og aðra. Auðvitað þarf að gera það með öllum eðlilegum fyrirvörum en a.m.k., ef menn ætla að kalla þetta áætlun, að það sjáist þó eitthvað á spilin. Sóttvarnalæknir skilaði inn minnisblaði sem ég hélt að yrði nokkuð traust andlag þeirrar áætlunar sem síðan átti að grípa til en ráðherrar og ríkisstjórnin hafa því miður talað svolítið út og suður og sent út misvísandi skilaboð þannig að maður veit í raun og veru ekkert hvað felst í þessari áætlun lengur. Ég kalla eftir svari frá hæstv. heilbrigðisráðherra um það. Þessi áætlun sem lesa mátti um í minnisblaði sóttvarnalæknis, stendur hún? (Forseti hringir.) Geta þeir sem eru að reka fyrirtæki, þeir sem eru í sviðslistum og allir þessir aðilar, (Forseti hringir.) gengið út frá því að það sem sóttvarnalæknir lagði til sé enn þá áætlun ríkisstjórnarinnar eða (Forseti hringir.) verður vikið frá því í einhverjum veigamiklum atriðum?
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna þingmenn á að halda tímamörk. )