afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir innlegg hans og spurningar. Spurningin er um þá áætlun sem kynnt var hér 28. janúar og ég fór yfir í tímalínu. Þar eru settar fram dagsetningar, sannarlega. Ég vil nú meina að áhættumat og minnisblað sóttvarnalæknis sé mjög traust andlag. Það kemur mjög skýrt fram, bæði þar og í kynningu á þessari áætlun, að þessar dagsetningar, 24. febrúar skref tvö og 14. mars full aflétting, eru ekki heilagar. Við erum bara í þeirri stöðu núna að vakta kerfin okkar sem eru í viðkvæmri stöðu, bæði heilbrigðisstofnanir, félagslega þjónustan og ýmsir aðrir samfélagslega mikilvægir innviðir. Það er bara að birtast okkur á hverjum degi með þessari útbreiðslu smita alltaf meiri og meiri birta sem gefur tilefni til þess að taka varfærin skref fyrr en felast í þessum dagsetningum. En ég hef alveg fullan skilning á þörf fyrir þann fyrirsjáanleika sem hv. þingmaður kallar eftir. Ég met það þannig að það sé mjög mikilvægt að það sem við getum gert — þetta hangir allt svolítið saman, við erum með einangrun í sjö daga, þetta fer mjög misjafnlega í fólk, hvað einkennin vara lengi og hvaða þjónustu það þarf á að halda hjá Covid-göngudeild og svo þessi viðkvæma staða. Við erum að vinna með það núna að stytta einangrun, þá geta mögulega fleiri komist til vinnu og fyrr og þá léttist á stöðunni og það gefur tilefni til þess að létta þá frekar. Þetta er í raun og veru þessi línudans sem við erum að stíga akkúrat (Forseti hringir.) núna út frá áhættumati sóttvarnalæknis.