afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir góða skýrslu hér í þinginu og nota tækifærið til að hrósa honum fyrir vel unnin störf við afar krefjandi aðstæður. Ég tek undir með hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni sem komst þannig að orði hér áðan að heilbrigðisráðherra hafi mætt nýju hlutverki af æðruleysi og mikilli auðmýkt.
Ég tek undir með hæstv. heilbrigðisráðherra að láta skynsemi ráða för og taka varfærin skref til afléttingar. Að gera þetta í skrefum og í samvinnu og samráði við sérfræðinga okkar er skynsamlegt. Um leið fagna ég því að staðan og aðgerðir séu til endurskoðunar daglega. Það að Landspítalinn sé kominn af neyðarstigi og við séum nú komin í afléttingarfasa er afar ánægjulegt. Hins vegar er einnig mikilvægt að horfa á landið allt en ekki einungis á Landspítalann. Á landsbyggðinni, líkt og hér á stórhöfuðborgarsvæðinu, er heilbrigðisþjónustan viðkvæm þegar kemur að mönnun og forföllum heilbrigðisstarfsfólks og starfsfólks annarra mikilvægra innviða. Reynsla okkur úr faraldrinum sýnir að áhrif hans koma seinna fram á landsbyggðinni en hér í höfuðborginni, sem styður enn frekar þá ákvörðun að stíga varlega til jarðar og taka stöndug skref í átt að afléttingu. Afléttingaráætlun gefur ákveðinn fyrirsjáanleika fyrir samfélagið og atvinnulífið. Hún er varfærin og mun vonandi ganga hraðar fyrir sig ef aðstæður leyfa. Við skulum samt hafa það í huga að þetta er ekki keppni þjóða um að aflétta öllu sem fyrst. Vika til eða frá mun ekki skera úr um það hvernig íslensku þjóðinni tekst til í baráttunni við þennan faraldur. Það verða aðrir mælikvarðar notaðir til þess.
Að lokum vil ég nota tækifærið hér og þakka þjóðinni og heilbrigðisstarfsfólki (Forseti hringir.) og öðru framlínustarfsfólki fyrir þeirra framlag í baráttunni sem fer vonandi senn að ljúka. Við höfum fulla ástæðu (Forseti hringir.) til að vera stolt af störfum þess.