152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:18]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svör hans. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mikilvægt að fara ekki að breyta um leikskipulag núna þegar sér fyrir endann á faraldrinum, leikskipulag sem hefur reynst okkur vel. Að fylgja ráðum sérfræðinga í meginatriðum hefur reynst okkur vel og verið afar farsælt. En langtímaafleiðingar faraldursins eiga hins vegar enn eftir að koma í ljós. Þá er ég ekki einungis að tala um líkamlegar afleiðingar veirunnar heldur líka varðandi andlega heilsu. Því er mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé í stakk búið að takast á við þær áskoranir. Við þurfum því, líkt og ég sagði áðan, að taka vel utan um starfsfólkið okkar sem búið er að standa vaktina og mun gera áfram að loknum faraldri til að takast á við afleiðingar hans.

Í framhaldi af því vil ég draga fram samvinnuna í heilbrigðiskerfinu sem við höfum séð í gegnum þennan faraldur. Það er t.d. ekki sjálfgefið að einkareknar læknastofur skelli í lás til að leggja sitt af mörkum til að aðstoða í faraldrinum og létta á álaginu. Faraldurinn hefur vissulega reynt á þolinmæði þjóðarinnar og mun gera það aðeins lengur. Þær vikur sem eru fram undan eru krefjandi og við þurfum að reikna með röskunum á ýmsum þjónustuþáttum samfélagsins. Því vil ég nýta tækifærið hérna í lokin og spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra um hvenær við megum vænta afléttinga á landamærum landsins. Líkt og komið hefur fram í umræðunni í dag er það afar mikilvægt fyrir viðspyrnu ferðaþjónustunnar um allt land.