afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir innlegg hennar og spurningu í lokin varðandi landamærin. Það er rétt sem hv. þingmaður dregur hér fram að þrátt fyrir að við getum öðlast frelsið aftur og aflétt samkomutakmörkunum og lífið fari í þann farveg sem við þekkjum fyrir þá er ýmislegt sem við þurfum að vinna upp. Bæði hefur hægt á kerfinu öllu þannig að safnast hafa upp lengri biðlistar en æskilegt er varðandi alls konar aðgerðir. Og því miður eru ekki allir sem hafa veikst af þessari veiru svo heppnir að hafa jafnað sig alveg heldur eru enn að kljást við afleiðingar af þessum veikindum. Eftir á áhrifin, við erum ekki alveg komin með fulla þekkingu á því í hvaða mynd þau eru, hversu lengi þau munu vara og hvernig best er að meðhöndla þau. Það verður skoða það. Nú þegar eru inniliggjandi sjúklingar sem eru að kljást við slík vandamál, hafa bara ekki jafnað sig almennilega og þurfa meðhöndlun. Þetta er eitthvað sem við þurfum að huga mjög vel að.
Varðandi landamærin þá er landamærahópurinn að skoða þetta og hafin er vinna innan Stjórnarráðsins. Forsætisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti eru að endurskoða þessar reglur. Þrátt fyrir að sóttvarnalæknir hafi ekki lagt til sérstakrar breytingar að þessu leyti við þá afléttingaráætlun sem við kynntum er gert ráð fyrir að núgildandi reglur renni sitt skeið 28. febrúar. En ég legg áherslu á að ströngustu aðgerðum verður ekki við haldið (Forseti hringir.) nema brýna nauðsyn beri til. Mér sýnist full ástæða til að endurskoða það og það er þegar í vinnu.