afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir þessa skýrslugjöf. Nú er staðan sú að 19 eru inniliggjandi vegna Covid-19 á Landspítalanum, þrír á gjörgæslu og tveir í öndunarvél, samkvæmt upplýsingum rétt í þessu af vef Landspítalans. 208 starfsmenn Landspítalans eru í einangrun og 8.465 á göngudeild Covid-19. Það hefur verið gagnrýnt reglulega hér í þessum sal að upplýsingar séu svona lítt aðgengilegar fyrir okkur þingmenn til að glöggva okkur á stöðunni. Ég hef veitt því athygli að framan af var tilgreint sérstaklega hversu margir af þeim sem voru undir eftirliti göngudeildar Covid-19 væru líklegir til innlagnar. Nú hefur verið hætt að birta þessar upplýsingar á vef Landspítalans. Þekkir hæstv. ráðherra hvers vegna það er staðan?
Þessi svokallaða afléttingaráætlun ríkisstjórnarinnar, sem ég kýs að kalla framlengingaráætlun í ljósi þess hversu þunn hún var, olli miklum vonbrigðum síðastliðinn föstudag. Hér fyrr í dag var sérstök umræða um áhrif sóttvarnaaðgerða á líf og heilsu og umhverfi barna og unglinga og það velkist enginn í vafa um það að svo íþyngjandi aðgerðir sem hér hafa verið viðhafðar um langa hríð hafa afleidd áhrif. Því vil ég spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra, og ég veit að hann hefur ekki fullbúin svör á reiðum höndum en hann kemur sér kannski upp afstöðu til málsins í kjölfar spurningarinnar: Telur hann að fleiri lífár hafi tapast vegna Covid-19 andláta eða vegna uppsafnaðra áhrifa (Forseti hringir.) af aðgerðunum sem þjóðin hefur verið undirorpin síðastliðin tvö ár og líklegt er að hafi áhrif hér til næstu ára, m.a. vegna tafa á greiningu sjúkdóma og fleiri annarra slíkra þátta?