152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:24]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir gott innlegg og góðar spurningar. Hv. þingmaður sagði að hann ætti ekki von á því að ég gæti svarað þeim en að ég gæti komið með afstöðu mína til þeirra. Það eru 19 inniliggjandi á spítalanum. Þegar það voru 47 inni og við hertum, svona um það leyti, var mjög þungt hljóð á spítalanum og þá gerðu spálíkönin, eins og ég fór yfir í ræðu minni, ráð fyrir því að þetta myndi stíga verulega. En á sama tíma voru að birtast okkur gögn frá þjóðum sem voru á undan okkur í bylgjunni um að innlagnarhlutföllin væru bara miklu lægri í ómíkron og meðallegutíminn styttri. Sú hefur orðið raunin, blessunarlega segi ég. Það eru 26 inniliggjandi, 19 vegna Covid, hv. þingmaður fór réttilega yfir það.

Hvað varðar þær upplýsingar sem hv. þingmaður vísar til og segir að séu ekki lengur aðgengilegar, er hv. þingmaður að spyrja út í það sem er gul- og rauðmerkt í Birkiborg? Ég hef ekki orðið var við það. Ég byrja eiginlega alltaf morgnana á því að skoða spítalann og Birkiborg, hversu margir eru þar, hverjir gulir og hverjir rauðir og reyni að sjá aðeins inn í þetta. (Gripið fram í.) Þá þarf ég bara að skoða það. Ég var ekki búinn að taka eftir því. Mér finnst eins og það hafi verið í þeim tölvupósti sem ég fékk í morgun. Það er mjög gagnlegt, ég tek undir það með hv. þingmanni, sem bestar og raunhæfastar upplýsingar eru mjög mikilvægar.

Þetta er risastór spurning varðandi lífárin sem hv. þingmaður kom með. (Forseti hringir.) Ég er eiginlega mjög hugsi yfir því hvaða breytur við þyrftum að taka inn í það. (Forseti hringir.) Eins og hv. þingmaður fór hér yfir þá hefur þetta svo víðtæk áhrif. Ég skal koma inn á þetta í seinna svari. Mér finnst mjög þetta mjög athyglisverð spurning.