afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég ætla bara að halda mig við þessar vangaveltur sem snúa að töpuðum lífárum. Við þekkjum umræðuna um aukinn fjölda sjálfsvíga. Við þekkjum umræðuna um að fólk er að greinast mögulega seinna en annars væri með alvarlega sjúkdóma, krabbamein o.fl. Þetta er auðvitað eitthvað sem mun hafa áhrif á töpuð lífár til langrar framtíðar. Það er ekki bara það sem við sjáum fyrir okkur akkúrat núna, til að mynda í sjálfsvígstölum. Ég held að þetta sé hlutur sem er algerlega nauðsynlegt að hæstv. heilbrigðisráðherra leggi mat á. Það er hægt að fara nokkuð nærri um það hvert umfang tapaðra lífára er vegna þeirra andláta sem hlotist hafa af Covid-19 sýkingu en hitt er flóknara og skiptir mjög miklu máli. Það eru nefnilega gríðarleg áhrif sem þessar íþyngjandi takmarkanir stjórnvalda (Forseti hringir.) hafa haft, sérstaklega á yngri hópa samfélagsins (Forseti hringir.) sem hafa verið að koma fram undanfarin tvö ár og munu koma fram af miklum þunga næstu misseri og ár.