afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir innleggið og þessa spurningu um lífárin í samhengi við þær takmarkanir sem við setjum og eru hamlandi fyrir svo fjölmargt í lífi okkar og hafa áhrif á félagslega, andlega og jafnvel líkamlega líðan okkar, sem er skilgreiningin á lýðheilsu. Hér er líka undir það sem hagfræðingar meta sem fórnarkostnaðarhugtak eða fórnarhugtak. Ég er bara komin á fullt með það í kollinum hvernig við nálgumst þær breytur sem þyrftu að koma inn í svona til að ná fram einhverri tölu sem segir okkur hvað? En þegar maður fer í svona stórar spurningar og vangaveltur (Forseti hringir.) þá kallar það líka fram allt það sem við erum að kljást við í gegnum faraldurinn (Forseti hringir.) og það er eiginlega alveg ömurlegt, hæstv. forseti, að hafa ekki lengri tíma í þetta.