152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:37]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að við séum alla vega ræða afléttingar og afléttingaráætlun og þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að koma hingað og eiga það samtal við þingið. Það er mjög mikilvægt. Það sem mig langaði kannski helst til að ræða við hæstv. ráðherra er gagnsæið og hver ástæðan er fyrir þessari afléttingaráætlun og þessum skrefum en ekki einhverjum öðrum. Þá langaði mig líka að beina sjónum að því að mér finnst svolítið vanta gögnin og upplýsingarnar um af hverju þessi skref voru tekin. Núna eftir miklar athugasemdir, sérstaklega frá aðilum í menningunni og viðburðahaldi, eru takmarkanirnar sniðnar til. Ég hef skilið það þannig að fjöldinn 500 sé miðaður við stærðina á húsunum, þannig að það eru kannski ekki beint einhver vísindi þarna á bak við heldur meira hvað hentar rekstri leikhúsa og annarra viðburðahaldara. Þá vil ég bara fá að vita það: Hvað er það sem ákveður þetta, þessa forgangsröðun, þannig að ekki er tekið tillit til — eins og ég er búinn að koma inn á þá eru viðbrögðin sem við erum að grípa til rekstrarlegs eðlis, að þetta hafi sem minnst óþarfa áhrif eða íþyngjandi áhrif á rekstur. En ég vil koma inn á andlega heilsu. Af hverju eru ekki framhaldsskólanemendur þarna inni? Af hverju ekki tómstundir framhaldsskólanema, skólaböllin og annað? Það skiptir miklu máli. Það er eitthvað sem ríkisstjórnin getur ekki bætt með fjármunum, andleg heilsa framhaldsskólanema. Hvar eru aðgerðirnar og tilslakanir sem taka mið af aðstæðum þeirra?