152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:42]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Hann nefndi áhættumat og samræmi. Það sem ég vil vita er hvaða áhættumat fór fram. Fór fram áhættumat á þeim sem komust í fjölmiðlana og kvörtuðu eða fór fram áhættumat varðandi líf og heilsu allra þjóðfélagshópa, eins og t.d. framhaldsskólanemenda? Framhaldsskólanemandi, þó að hann veikist alvarlega af Covid þá eru samt yfir 90% líkur á að hann nái sér vel á nokkuð skömmum tíma af Covid-veikindunum, það eru mjög miklar líkur á því. En framhaldsskólanemi sem ekki nær að mynda nein tengsl á þriggja ára skólagöngu sinni, fær ekki að taka þátt í neinu félagslífi, er í gríðarlegri andlegri áhættu sem hann verður mjög lengi að ná sér út úr. Hvar er andleg heilsa framhaldsskólanemenda í þessu áhættumati og hvar eru aðgerðir til þess að mæta því, út frá þessu samræmi sem hæstv. ráðherra talar um við afléttingar og varðandi fjöldatakmarkanir og tilslakanir?