152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:43]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir að ræða hér samkvæmni og áhættumat. Þessi afléttingaráætlun byggir á áhættumati sóttvarnalæknis sem hann skilaði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra og á þeim grunni er ákvörðun tekin. Það kjarnast í fáum orðum þannig að mikil útbreiðsla smita telst ógn við almannaheill hér á landi vegna skertrar starfsemi ýmissa fyrirtækja. Þá er mikilvægt að vinda ofan af þessu í öruggum skrefum þar sem horft er til þess að útbreiðsla smita verði ekki of hröð vegna þess að enn eru einhverjir sem þurfa á aðstoð að halda þó að hlutföllin séu miklu lægri, eins og hv. þingmaður dró hér fram. Svo koma smit upp víða, fólk er frá vinnu og starfsemi er skert. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra heldur mjög vel utan um gögn þar sem birt er hversu margir eru frá störfum. Þar erum við að tala um 5–8% hlutfall og þá er það bara mjög veruleg ógn við starfsemi. Það hefur farið upp í allt að 15%. Þetta er vaktað mjög reglulega.

Varðandi skólastarfið þá myndi ég segja að við þyrftum að fá skoðun á því og rannsóknir hjá nemendum sjálfum, hvernig þeim líður. Það eru gögn sem benda til þess að líðan þeirra sé betri en við þorðum að vona og ég held að það hafi verið mjög farsælt í gegnum allan þennan faraldur að halda skólastarfi og tómstunda- og íþróttaiðkun barna og unglinga sem mest gangandi og öllu skólasamfélaginu. Og þar verð ég að hrósa skólasamfélaginu öllu og stjórnendum við mjög snúnar kringumstæður (Forseti hringir.) fyrir að halda því gangandi. Ég held að það sé kannski eitt það (Forseti hringir.) dýrmætasta sem við höfum haldið í samanburði við aðrar þjóðir í gegnum þennan faraldur.