152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:47]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir mjög þarft og gott innlegg. Eins og hv. þingmaður kom inn á hafa fleiri þingmenn í þessari umræðu komið inn á það, og í annarri umræðu, sem var hér á undan, og það er vel, þ.e. sem snýr að andlegri líðan. Ég held að hér þurfum við að taka, eins og fleiri hv. þingmenn komu inn á, m.a. sá er situr nú í stól forseta, stöðuna á lýðheilsunni í samræmi við allar aðrar mótvægisaðgerðir og taka svolítið heildrænt mat. Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir kom jafnframt inn á þetta. Núna er í gangi í ráðuneytinu hjá mér undirbúningur að aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Við þurfum að taka þetta mjög heildstætt og föstum tökum. Ég legg mikla áherslu á það. Það er auðvitað mjög stór þáttur í forvörnum, í lýðheilsu, en það er líka mjög stór þáttur í andlegri líðan sem er svo stór partur af lýðheilsunni. Jafnframt erum við að gera forvarnaaðgerðaáætlun, aðskilda þó, ég held að það sé mjög mikilvægt, í heilsutengdum forvörnum sem snýr að andlegri, félagslegri og líkamlegri líðan. Það snýr ekki síst að börnum og unglingum. En við erum líka með þriðju aðgerðaáætlunina sem er í samvinnu við félagsmálaráðuneytið, sem er heildstæð áætlun fyrir eldri hópa samfélagsins. Ég held að ef við getum gert eitthvað gott í heilbrigðisþjónustunni — það er svo margt sem við þurfum að gera betur — þá sé það þarna og að eyða meiri fjármunum í forvarnir og að taka utan um þessi mál.