152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:49]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir jákvæð svör. Það er von mín að hæstv. ráðherra muni hafa þingið með í ráðum og kynni sem fyrst þessar áætlanir fyrir þinginu. Í seinni spurningu minni langaði mig að horfa aðeins til baka. Sem aðili sem hefur tekið þátt í mörgum krísum og stjórnað þeim veit ég að það er alltaf mikilvægt að taka vel upplýstar ákvarðanir. Ég tel að í þessu ferli höfum við blessunarlega tekið margar vel upplýstar ákvarðanir, en upplýstar ákvarðanir eru alltaf byggðar á gögnum hvers tíma. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort það séu einhverjar áætlanir um að gera óháða úttekt á þeim viðbrögðum sem verið hafa á síðustu tveimur árum, og þá með sérstaka áherslu á hvar hefði ekki þurft að gera hluti, t.d. varðandi samkomutakmarkanir, (Forseti hringir.) ef mönnunarvandi Landspítalans hefði verið leystur, (Forseti hringir.) hvort kostnaðurinn við það að leysa hann hefði verið minni en kostnaður við aðgerðir sem við þurftum að fara í.