afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni spurningar hans hér. Aðeins varðandi aðgerðaáætlun í lýðheilsu- og geðheilbrigðismálum og forvörnum, bæði fyrir eldri aldurshópana og svo í geðheilbrigðismálum og í lýðheilsutengdum forvörnum, þá hef ég lagt á það mikla áherslu að setja þær aðgerðaáætlanir fram í formi þingsályktunartillögu, einmitt til að þingið taki utan um málið og bæti það og fari í gegnum það með öllum hagsmunaaðilum og mjög vandaða vinnu í gegnum nefndir. Ég held að það geti orðið mjög mikill styrkur í því. Við reynum auðvitað að hafa þetta vandað þegar það kemur inn í þingið þannig að hægt sé að vinna vel með málið og bæta það. Ég legg mikla áherslu á það. Varðandi það að horfa til baka þá held ég að við þurfum að gera það til að læra af því.