152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:52]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Herra forseti. Heilbrigðisráðherra hefur komist vel frá þessari umræðu. Ég hef verið mjög ánægður að heyra margt sem hér hefur komið fram af hans hálfu og hann stígur fram sem leiðtogi í þessum málaflokki, sem mér þykir gott. Við þurfum farsæla forystu hér þegar hrópað er á torgum í kringum okkur í allar áttir. Og talandi um það, hv. þm. Sigmar Guðmundsson tekur það til sín þegar ég vísa hér í ræðu til þeirrar samstöðu sem þjóðin hefur sýnt í faraldrinum, hversu farsælt það hefur verið og mikilvægt að halda út til enda. Hann talar ekki inn í þessa samstöðu, grefur frekar undan henni og tekur því með ólund að rifjað sé upp hversu vel hafi tekist undanfarin misseri, ekki síst ef við horfum til annarra landa. Fyrir hann og aðra sem þess þurfa endurtek ég: Við erum í þessari stöðu nú að geta stigið farsæl og varfærin skref í afléttingum takmarkana vegna þess hve samstaða landsmanna hefur í raun verið mikil hingað til og þannig bjargað mörgum mannslífum. Verið hefur gagnkvæm virðing fyrir lífi og heilsu og traust á almenna heilbrigðiskerfinu okkar. Við höfum fulla ástæðu til að vera stolt af framlínufólkinu okkar, heilbrigðisstarfsfólki, kennurum, leikskólakennurum og öðrum sem staðið hafa vaktina. Já, og forysta og samstaða stjórnvalda og heilbrigðisráðherra hefur skipt miklu undanfarin misseri, en það hefur verið grundvallaratriði hve þjóðin hefur staðið saman í gegnum faraldurinn. Núverandi og fyrrverandi heilbrigðisráðherra hafa haldið af alúð, varúð og skynsemi á hlutverki sínu og notið bestu ráðgjafar sóttvarnalæknis og teymis hans, notið leiðsagnar vísinda við að taka sem réttastar og farsælastar ákvarðanir á hverjum tíma. Og samhliða hefur verið gripið til aðgerða til að lágmarka áhrif faraldursins á efnahagslíf og samfélag. Vonandi tekst Alþingi Íslendinga og stjórnvöldum áfram að feta þann veg.