152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:54]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bjarna Jónssyni fyrir innleggið. Hann kemur inn á samstöðuna, sem ég held að við metum öll mjög dýrmæta. Ég hef hugsað þetta mikið vegna þess að á þessum kvarða eru frelsi og takmarkanir og það er snúið verkefni að meta ýtrustu aðgerðir sem eru mjög takmarkandi á mælikvarða frelsis, meðalhófs og jafnræðis. Það getur verið býsna snúið þegar kringumstæðurnar breytast og tölurnar og grunnurinn þar sem maður stendur. Þá er mjög mikilvægt að hafa formlegt heildstætt mat frá helstu sérfræðingum okkar.

Ef það er eitthvað sem ég hef lært í þessu þá er það, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson sagði og hv. þm. Bjarni Jónsson vísaði í í ræðu sinni — mögulega að fenginni reynslu eftir að hafa verið að kljást við þetta í tvö ár — heildstætt andlag þeirrar ákvörðunartöku sem þarf að fara fram í hvora áttina sem við erum að fara, að takmarka frekar eða herða takmarkanir eða aflétta. Eins og gjarnan vill verða þegar umræða verður hörð, úr hvorri átt sem það og ég umber svo sannarlega, þá styrkir það mann oftast í trúnni að þurfa að takast á við það. Það er bara mjög mikilvægt að það eigi sér stað, eins og þessi umræða hér í dag, sem mér finnst reyndar yfirvegaðri en ég átti von á, miklu yfirvegaðri og góð á margan hátt.