afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra. Ég hef svo sem ekki miklu við að bæta. Þetta er búin að vera fín umræða, eins ég kom inn á, og ég vona að hún skili okkur áfram. Ég undirstrika, eins og ráðherra gerði, hvað það skiptir miklu máli að við sýnum samstöðu og missum ekki fótanna á síðustu metrunum. Þetta er búið að vera strembið, krefjandi verkefni og þeir sem staðið hafa í stafni hérna hafa gert sitt besta í hverju sinni og tekið sem réttastar ákvarðanir, eins og ég sagði. Við þurfum að halda því áfram. Aðstæður breytast og því fylgja nýjar ákvarðanir og nýjar nálganir, en alltaf af varfærni og alltaf með heilsu fólks og líf í fyrsta sæti. Auðvitað þurfum við líka að gæta að því að samfélag og efnahagur komi sem best út úr þessu og rísi sem hraðast, en ávallt er líf og heilsa fólks í fyrsta sæti. Það er bara þannig.