152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:58]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarna Jónssyni innleggið. Mig langar aðeins að staldra við þetta hugtak, samstöðu. Það hefur einmitt verið samstaðan, ásamt mörgu öðru, sem hefur reynst okkur afar vel í gegnum þetta. Samstaðan ætti ekki að þurfa að gliðna neitt þó að við tökumst á um það hvaða skref við tökum eða hversu langt við eigum að ganga og hvernig við metum meðalhóf og jafnræði, sem er okkur svo dýrmætt og við verðum alltaf að virða á móti þeim sóttvarnaaðgerðum sem felast í takmörkunum hverju sinni. Þegar við erum búin að taka ákvörðun, þau okkar sem berum ábyrgð á því að leiða það til lykta hverju sinni út frá þessu heildstæða mati, þá á samstaðan að birtast í því að láta þá þær ákvarðanir ganga upp án þess að við gefum nokkuð eftir í því að gagnrýna þær ákvarðanir. Mér finnst umræðan í dag afar góð að því leytinu til að hún hefur verið yfirveguð en um leið gagnrýnin. Ég hef tilhneigingu til að horfa á þetta þannig að það er mjög bjart, það er birta í þessu. Tölurnar vinna sannarlega með okkur. Það er mjög viðkvæm staða víða í samfélaginu, sérstaklega þegar kemur að því að það vantar margt fólk vegna veikinda, það er frá vinnu og það er skerðandi fyrir ýmiss konar starfsemi og samfélagslega mikilvæga innviði. Það er fyrst og fremst það sem gerist. Það er á grundvelli upplýsinga frá almannavarnadeildinni okkar og sóttvarnalækni og landlækni sem við fetum þá stigu að ráða við stöðuna um leið og við förum í frekari afléttingar.