afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki lúslesið þetta frumvarp sem liggur inni í samráðsgáttinni en ég hef þó rennt yfir það og ég held að það séu ákveðnir þættir þar sem eru til bóta. Aðra þarf kannski að ræða aðeins betur, eins og til að mynda þetta með aðkomu þingsins. En ég hjó eftir því fyrr í umræðunni að þá talaði hæstv. heilbrigðisráðherra um að vandamálin á gjörgæslu spítalans væru frá, sem og alvarleg veikindi. Þá veltir maður því fyrir sér, núna þegar við erum á þeim stað í þessum ómíkron-faraldri, hvort það sé ekki orðið þannig að meðferðin sé orðin hættulegri en sjúkdómurinn. Við höfum alltaf rökstutt þetta út frá almannahættu vegna Covid, en það eru einhvern veginn önnur sjónarmið farin að koma inn í þetta sem þarf aðeins að ræða. Þannig að ég vildi fá hæstv. heilbrigðisráðherra til að velta því upp, ef hann getur á þeim stutta tíma sem ég veit að hann hefur: (Forseti hringir.) Er ekkert sérkennilegt að við séum svona mikið að vinna með nákvæmlega sömu ráðstafanir í dag (Forseti hringir.) og við vorum t.d. í upphafi faraldursins miðað við það hvað Covid er miklu, miklu, miklu vægari sjúkdómur nú en áður?