152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:07]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir spurningarnar varðandi frumvarpið um sóttvarnalög sem liggur í samráðsgátt. Já, það er mjög margt til bóta þar, sýnist mér, bæði skipan í embættið og það formlega samráð og hópur sem er að baki sóttvarnalækni, embættinu, sem þar er sett í formi farsóttanefndar. Ég held að það sé líka verið að tryggja meiri aðkomu þingsins, en ég giska á að hv. þingmanni finnist að aðkoma þingsins eigi að vera meiri. Þegar kemur að ákvarðanatöku um hvort meðferðin sé orðin hættulegri en sjúkdómurinn þá hefur viðureignin breyst; (Forseti hringir.) innlagnarhlutföllin eru miklu lægri, 0,1–0,2, það er aðeins lagskipt eftir aldurshópum, (Forseti hringir.) það er eilítið snúið. En þær takmarkanir sem við erum að beita eru sannarlega (Forseti hringir.) til þess að tempra of hraða útbreiðslu þannig að stofnanir með fjölda starfsfólks frá vegna veikinda (Forseti hringir.) ráði við stöðuna.