afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég vil, eins og aðrir hv. þingmenn, þakka fyrir þetta samtal sem við eigum hér í þingsal. Það er ágætt eins langt og það nær. Yfirskrift samtalsins núna er afléttingaráætlanir stjórnvalda. Í rauninni eru einu gögnin sem ég sem þingmaður get fundið um þetta mál fréttatilkynning hjá Stjórnarráðinu og minnisblað sóttvarnalæknis um afléttingu opinberra sóttvarnaaðgerða og tillögur hans til þess í þremur pörtum; aðgerðir 3. febrúar, 24. febrúar og svo 14. mars, þegar við ætlum öll að leggja grímum og hætta öllum aðgerðum. Hæstv. ráðherra hefur sagt að hann vænti þess jafnvel að þetta geti gerst hraðar og ég vona svo innilega að svo geti orðið.
Hér hafa komið upp þingmenn, eins og hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir sem sagðist ekki hafa neinar forsendur til að leggja mat á þetta því að þetta væri nokkuð sem við ættum fyrst og fremst að horfa til vísindamannanna okkar með. Ég velti hreinlega fyrir mér: Hefur hæstv. ráðherra einhver frekari gögn en við í þessum sal þegar við ræðum um afléttingaráætlanir og því tengt? Hvernig líður hæstv. ráðherra með það fyrirkomulag sem við höfum samkvæmt lögunum í dag, sem virkar í rauninni þannig að sóttvarnalækni er uppálagt að skrifa minnisblað til hæstv. ráðherra sem hæstv. ráðherra gerir svo iðulega að reglugerð sinni, stundum með örlitlum breytingum, en valdið er, eins og almennt með reglugerðir, allt hjá ráðherra? Það er ekkert annað í ferlinu sem er krafist. Ég velti því fyrir mér hvað hæstv. ráðherra finnist um þessar valdheimildir ráðherra. (Forseti hringir.) Nú er hann nýr í þessu starfi og hefur tekist á við það með miklum myndarbrag. Almennt er það þannig í lögum að reglugerðarheimildarákvæði (Forseti hringir.) er mjög takmarkað en í þessu tilfelli er það (Forseti hringir.) ofboðslega víðtækt.