152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:11]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur spurningarnar. Ég gæti valið að horfa á þær þröngt, ég gæti líka valið að horfa á þær vítt. Við þekkjum það öll úr okkar störfum hversu mikilvægt það er þegar við fjöllum um ákveðin málefni að við höfum góð gögn, gott aðgengi að upplýsingum, í hvaða formi sem það er og mismunandi eftir því hvaða mál við erum að fjalla um. Ég skal alveg viðurkenna að ég hef í höndunum minnisblað frá sóttvarnalækni þar sem kemur fram áhættumat og rökstuðningur við þær aðgerðir sem lagðar eru til. Í framhaldinu hef ég þau tæki, eins og við beitum gjarnan hér í þinginu, að kalla eftir, með spurningum og samtölum, frekari gögnum til rökstuðnings. Það hef ég gert þegar ég hef ekki fundið rökstuðninginn þegar ég þarf að horfa á þetta til lengri tíma. Þá get ég vísað í 12. gr. sóttvarnalaga um jafnræðið og meðalhófið og brýna nauðsyn og hversu langt á að ganga. Þá hef ég ekki annað ráð en að spyrja frekar og eiga samtal um það. Landlæknisembættið, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landspítalinn, þar sem sérfræðingarnir eru, Covid-göngudeildin og ekki síst sóttvarnalæknir sjálfur, hafa verið mjög dugleg við að svara spurningum mínum og rökstyðja frekar. Það er síðan alveg rétt að með lögunum hefur þingið, sérstaklega á sviði heilbrigðisþjónustu, eins og í þessu tilviki, falið sérfræðingunum ákveðið vald sem birtist í því að þetta mat er býsna snúið og eins að fara að einhverju verulegu leyti gegn tillögum sem byggja á áhættumati sérfræðinganna. Þannig að þetta er ekkert ólíkt því þegar við erum að vinna hér í þinginu og köllum eftir frekari gögnum, fáum til okkar hagsmunaaðila og rekjum okkur í gegnum þetta til að rökstuðningurinn sé á sem traustustum grunni.