152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi einlægu svör. Það er einmitt þetta sem ég er að kalla eftir, þ.e. með upplýsingarnar og samtalið sem mér hefur þótt vanta í þessari Covid-vegferð okkar, og þá meina ég þingið. Ekki það að samtalið vanti, það hefur verið gott samtal við heilbrigðisráðherra, en það er þá aðgengi þingmanna að frekari gögnum og frekara samtali við sérfræðinga um nauðsyn aðgerða og rökstuðning fyrir því. Og bara svo að það misskiljist ekki þá er ég með engum hætti að gagnrýna sóttvarnalækni eða vísindamenn okkar, heldur er ég að gagnrýna það form sem við hér í þessum sal höfum sjálf komið upp. Þess vegna langar mig að nota tækifærið núna og spyrja hæstv. ráðherra: Hvað höfum við lært á þessari vegferð? Hvað höfum við gert vel og hvað þurfum við að laga þannig að við getum gert betur næst þegar eitthvað sambærilegt kemur upp?