afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir. Hvað höfum við lært, hvað höfum við gert vel og hvað getum við gert betur? Það sem mér finnst við hafa lært af alveg fordæmalausri viðureign, eitthvað sem okkur óraði bara ekki fyrir — og kannski hefðum við ekki getað svarað ef við hefðum á fyrstu stigum fengið spurninguna: Hvað ætlið þið að gera ef þetta skellur á? Þá hafði blessunarlega verið búið svo um það í lögum, og er víða í heilbrigðisþjónustunni, að treysta á sérfræðinga sem vita eitthvað um þetta og kunna að takast á við það. Ég held að það hafi nú bara komið í ljós að það hafi verið farsæl ákvörðun að búa svo um hnútana. Ég held að almannavarnadeildin, embætti landlæknis og sóttvarnalæknir hafi staðið sig afar vel. Okkur auðnaðist að fara þá leið að fara að þeirra ráðum. Það var auðvelt í byrjun en það verður sífellt strembnara. Það þekkjum við. Ég held að það hafi verið rétt að búa þannig um hnútana. Það höfum við lært og við höfum gert vel í því að fylgja þeirra ráðum. En nú er komið að því að skoða hvað við eigum að læra af þessu. Þar er komið að kjarnanum í því sem hv. þingmaður hóf mál sitt á. Hvar eiga upplýsingarnar að koma fram, og þá er ég að tala um aðgengileikann og gagnsæið? Í hvaða formi eiga þær að vera? Ég held að við ættum líka að ræða sóttvarnalögin á þessum grundvelli, aðkomu þingsins (Forseti hringir.) og hvernig ákvarðanatökuferlið er; frá þessu minnisblaði til heilbrigðisráðherra, inn í ráðherranefnd (Forseti hringir.) og inn í ríkisstjórn, hvernig við horfum á þetta ferli og út frá gögnunum. (Forseti hringir.) Við leystum þetta nokkuð skynsamlega með upplýsingafundunum, (Forseti hringir.) við leystum þetta með reglubundnu samtali í byrjun og lengi vel, (Forseti hringir.) en við þurfum að hafa þetta á föstu formi.