152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

afléttingaráætlun stjórnvalda, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:18]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Jú, það myndi nú einhver ætla að sá sem hér stendur hafi talað nóg í dag. En að lokum ætla ég bara að ítreka að mér finnst þessi umræða hafa verið afar góð. Hún er góð af því að um leið og hún er mjög gagnrýnin, sem er nauðsynlegt af því að þetta er ekki allt fullkomið, þá er hún yfirveguð og kjarnar mjög marga hluti sem skipta okkur máli í framhaldinu um það hvernig við getum tekist á við áskoranir eins og þær sem felast í þessu verkefni okkar.

Eins og ég rakti í fyrri ræðu er í áhættumati sóttvarnalæknis og færustu sérfræðinga okkar, sem hann hefur sér til fulltingis, það metið svo að enn stafi samfélaginu hætta af Covid-19 ef öllum takmörkunum verður aflétt í einu vetfangi. Þessi áhætta fer minnkandi. Það lesum við í tölunum dag frá degi. Hún er hins vegar mjög viðkvæm víða í samfélaginu, inni á stofnunum, í heilbrigðisþjónustu, í félagslegri þjónustu, bara víða í samfélagslega mikilvægri starfsemi. Þess vegna höfum við tekið þær ákvarðanir í þessari afléttingaráætlun að taka þetta í skynsamlegum skrefum í samráði við færustu sérfræðinga okkar. Ég held að það hafi líka komið fram hér að samhliða þarf að fara fram endurskoðun á þeim reglum sem við höfum haft á landamærunum (Forseti hringir.) svo það sé í það minnsta sambærilegt við það sem aðrar þjóðir hafa, og horfa til afléttingar þar um leið.