búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér eitt af hjartans málum okkar í Viðreisn og það tengist samkeppni, að raunveruleg samkeppni virki hér þvert yfir samfélagið og að ekki gildi sérreglur. Frumvarpið snertir breytingu á búvörulögum, búnaðarlögum og afnám samkeppnishindrana og það er flutt í fimmta sinn. Þetta er mál fyrir neytendur og þá sem trúa á að samkeppni skili sér í fjölbreytni, í nýsköpun, í tækifærum, sanngjarnara samfélagi, að við förum frá fákeppni yfir í fjölbreytni og samkeppni.
Ég stend hér í pontu og flyt þetta mál okkar í Viðreisn og fæ fyrir vikið oft harkaleg viðbrögð, það verður að segjast eins og er, frá ýmsum fulltrúum hagsmunaafla og meiri hlutans. (Gripið fram í.) Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hvað býr hv. þingmanni í brjósti?
(Forseti (BLG): Spara samræður á milli ræðumanns og salar.)
Já, það eru alla vega harkaleg viðbrögð sem hafa fengist af hálfu þeirra sem eru fulltrúar hagsmunaafla, sem vilja óbreytt kerfi, áfram miðstýringu, áfram að vinna fyrir milliliði í landbúnaðarkerfinu, áfram að koma í veg fyrir raunverulega samkeppni. Það þýðir ekki að tala um að samkeppni eigi að gilda hér, að við viljum búa við samkeppnishæf lífskjör, búa við almennar reglur, þegar við erum síðan með sérreglur víða í löggjöfinni. Það vill reyndar svo til að sérreglurnar eru ekki síst á þeim málefnasviðum sem ekki falla undir EES-samninginn, þ.e. í sjávarútvegi, en ekki síst í landbúnaði. Er það tilviljun að almennar reglur gildi ekki þar, að búnar eru til einhverjar heimatilbúnar íslenskar reglur? Mér finnst þær augljóslega ekki þjóna hagsmunum bænda og ekki heldur hagsmunum neytenda. Hverra hagsmuna er þá verið að gæta? Þess má spyrja þegar kerfið er svona. Við erum, eins og ég segi, að flytja málið í fimmta sinn og það fær vart afgreiðslu í nefndum hér í þinginu.
Þegar við í Viðreisn fáum tækifæri til að ræða það og undirstrika að almannahagsmunir gangi framar sérhagsmunum og náum að flytja mál, fáum til þess tíma hjá hæstv. forseta að setja mál okkar á dagskrá, sem snerta einmitt almannahag, þá er það í raun hátíðisdagur í mínum huga. Vonandi fáum við í kjölfarið málefnalega umræðu um samkeppni, um sjálfbærni, um jafnrétti og um nýsköpun, sem er einmitt leiðarstef okkar í Viðreisn. Við viljum ræða frelsi. Við viljum ræða einföldun regluverks, það er gríðarlega mikilvægt að við förum í það. Og um leið viljum við ræða hvernig við þurfum að styrkja íslenskan landbúnað eftir því sem við best getum. Ég þreytist heldur ekki á að segja það, því að það er alltaf verið að reyna að draga upp einhverja mynd sem er ekki sú sama og við stöndum fyrir, að við viljum styrkja íslenskan landbúnað. Við viljum gera það. En við segjum líka alveg óhikað, og treystum okkur til að rökstyðja það, að landbúnaður og umhverfi hans, eins og það er byggt upp núna, þjónar ekki hagsmunum bænda eða neytenda. Það sýnir sig.
Á sínum tíma var mesta tregðan við inngöngu Finnlands í Evrópusambandið meðal bænda. Þar var mesti þunginn í andófinu þegar Finnland gekk í Evrópusambandið. Bændur voru hræddir við þær breytingar og það regluverk og þá umgjörð sem Evrópusambandið hafði undirbyggt hvað varðar landbúnað í Evrópu. En bændur vilja ekki hverfa til baka því að þeir sjá tækifærin í einfaldara regluverki og líka í því að ýtt er undir umhverfisvænan landbúnað, í því að jarðirnar verða betur nýttar og bændum sjálfum er treyst til að meta það. Það eru fáir betur til þess fallnir en bændur sjálfir að meta hvernig best er að yrkja og rækta jörðina. Er það með kornrækt? Er það með hefðbundnum landbúnaði? Er það með því að rækta repju, eru sóknarfæri þar? Hvað er best að gera? Hvað er best að gera fyrir landbúnað? Við eigum að treysta bændum til þess að vera með hvata sem ýta undir umhverfisvænan landbúnað og við sjáum að það hefur skilað sér; eins og ég gat um áðan hefur viðhorfið breyst hjá finnskum bændum til þess.
Við þurfum að halda áfram að styrkja íslenskan landbúnað en á forsendum almennra reglna, á forsendum þess að samkeppni geti þrifist og ég trúi því að samkeppni fylgi nýsköpun. Við eigum að ýta fákeppni út en fá inn fjölbreytni og sanngjarnara umhverfi fyrir bændur og neytendur. Við verðum að finna leiðir til að koma umræðunni á þann stað að við getum eflt neytendur og bændur á sama tíma í stað þess að vera endalaust að stilla þessum gríðarlega mikilvægu hópum samfélagsins upp sem andstæðum pólum. Það eru sameiginlegir hagsmunir að fá þessa mikilvægu hópa til að tala og standa saman. Þetta eru ekki andstæðir pólar, bændur eru háðir neytendum og neytendur eru háðir bændum.
Ég er nú í fimmta skipti að reyna að draga það fram hversu hrópandi ósamræmi það er að stuðla að fákeppni og einsleitni á jafn mikilvægum markaði og landbúnaðarmarkaðurinn er. Þetta snýst um að veita bændum frelsi til þess að ráða yfir sér sjálfir, frelsi frá milliliðunum, frelsi til að búa við þannig umhverfi að það ýti þeim út í það sem þeir meta að sé best fyrir markaðinn, fyrir umhverfið, fyrir loftslagið, fyrir það hvernig þeir sjálfir geta lifað af í sambýli við náttúru og umhverfi. Það er dýrmætt val að geta ráðið sér sjálfur og það er það sem við erum að reyna að undirstrika og ýta fram hér.
Til eru mörg falleg fordæmi um hvað það er sem leysist úr læðingi þegar fjötrum er kippt af fákeppni og samkeppni og nýsköpun tekur við. Þá kemur til sögunnar það áhrifavald sem neytendur hafa hverju sinni og hefur áhrif á það hvernig hlutirnir þróast. Ég hef áður tekið dæmi um það í þessum sal þegar við breyttum styrkjareglunum í grænmeti, fórum í ákveðnum hluta grænmetisræktunar úr lokun yfir í það að opna meira fyrir samkeppni, fórum aðra leið til að styðja við bændur, veittum þeim meiri beina styrki, sem er miklu skynsamlegra. Og hvað gerðist þá í tómataræktuninni? Við munum hvernig tómataræktun var hér heima fyrir 20 árum. Þetta var bara ein gerð af tómötum, mjög fallegir, safaríkir, rauðir, tómatar, ekki spurning, en það var bara ein gerð. Svo kom samkeppnin og nú fáum við margar gerðir af tómötum. Við fáum nú kokteiltómata. Við fáum alls konar tómata; litla, stóra, langa, kringlótta, hvernig sem er. Og ekki bara það, hvað gerðist að auki? Mér er minnisstætt samtal sem ég átti við grænmetisbónda, sem er einn sá stærsti í tómataræktuninni, þar sem hann sagði: Ég fæ ekki lengur mesta arðsemi út úr því að framleiða tómatana sjálfa heldur eru það hliðarafurðirnar og nýsköpunin sem hefur átt sér stað við ræktun á tómötunum. Það er bóndinn sjálfur sem græðir á því að fara út í nýsköpun, fara út í fjölbreytni af því að það er eftirspurn af hálfu neytendanna. Þannig virkar samkeppni. Þannig virkar frelsið. Það eru þessir dýrmætu hvatar sem við fáum með því að opna samfélagið, nútímavæða það, horfast í augu við að gamla kerfið styður ekki við þá sem við viljum styðja við, sem eru bændur og neytendur.
Menn þurfa því, í fullri vinsemd — og ég ber virðingu fyrir sögunni, á þeim tíma þegar kerfið var mótað var það eflaust ágætt. Á sínum tíma voru það Sambandið og kaupfélögin sem réðu öllu, höfðu tangarhald á bændum. Það var gagnrýnt mjög mikið. En það voru líka jákvæðir hlutir sem gerðust og þróuðust og við höfum þróast áfram og það er margt jákvætt sem hefur gerst. Það var þá en nú er ástandið annað og fleiri þættir eru komnir inn í myndina. Við getum nefnt loftslagsmálin, breytt neyslumynstur og breytta neysluhegðun af hálfu neytenda hér heima, svo ég tali ekki um mikilvægan grunnatvinnuveg sem er ferðaþjónustan. Ferðaþjónustan hefur líka ýtt undir fjölbreytni í landbúnaði, meiri eftirspurn eftir íslenskum vörum, og skyldi engan undra. Það ýtir líka undir alls konar þróun meðal bænda sem þurfa miklu meira frelsi.
Og talandi um frelsi, þróun meðal bænda, að fá ekki að vera með hliðarafurð eða mikilvægar afurðir eins og framleiðslu á áfengum bjór eða vínum, sem væri sjálfsagt að leyfa bændum að selja á sínu heimasvæði. Þar þarf að liðka til og ég vona að ríkisstjórnin fari að gera eitthvað í því máli en hafi ekki bara slík mál á þingmálaskrá og gaspri um það úti í samfélaginu. Við þurfum að opna þessar leiðir fyrir bændur. Norðmenn gerðu það t.d. með mjög góðum árangri, með sín frægu epli. Þeir eru með alls konar eplaafurðir. Norðmenn eru pínulitlir púritanar þegar kemur að sölu áfengis, en þeir leyfa bændum að selja slíkar afurðir beint frá býli, þó að þær séu með einhverjum vínanda í. Við þurfum að opna á allt þetta, hver grein styður við aðra.
Virðulegur forseti. Ég tel að það sé ekki náttúrulögmál, eins og sumir í þessum sal vilja halda fram, að miðstýra þurfi neyslunni með tollum og gjöldum og gamaldags nefndum. Ég kem að verðlagsnefnd búvara hér á eftir. Fyrr á þessum vetri upplifðum við skort á blómkáli og selleríi; það eru ekki allir sem borða sellerí en það er mikilvægt í ýmsan mat, í fyllingu í kalkún og ýmislegt, waldorfsalat. Hér hrista menn hausinn, gott og vel, ég skil það. En þetta er bara val, einn vill ekki sellerí en annar vill sellerí. Og meira að segja í sama flokki. (Gripið fram í.) — Ókei, það þiggja fleiri sellerí hér en ræðumaður. En þetta þarf að vera flæði. Þetta þarf að vera þannig að við getum valið, að við treystum einstaklingunum til að velja. En ríkisstjórnin vill þetta ekki. Það er pólitísk ákvörðun að leggja tolla á ákveðnar vörur á ákveðnum tíma árs. Það sýndi sig að það virkaði ekki. Það var eins og aftan úr forneskju að horfa upp á þetta furðulega fyrirkomulag og uppákomu nú fyrr í vetur. Það er kannski ekki endilega að þetta komi á óvart með þessa þrjá framsóknarflokka eða íhaldsflokka, eða hvað við viljum nefna þá, í ríkisstjórn. Þessi uppákoma hefur ítrekað orðið á þeirra vakt, aftur og aftur, lagað og stagbætt einhverjum mánuðum síðar, jákvæð skref að mínu mati, en enn og aftur bara stagbæting, pínulítið lagað, ekki mikið, ekkert hugrekki til að stokka svolítið upp í kerfinu.
Við eigum að styðja bændur beint, ekki vera með þetta kerfi sem er svo flókið eins og það er byggt upp núna. Af hverri krónu sem við hér á þinginu samþykkjum til bænda með góðum hug fer ekki nema brotabrot til bændanna sjálfra. Samt viljum við halda þessu kerfi uppi, bara með mismunandi hætti. Ég ber virðingu fyrir þeim sem vilja engu breyta, en ég vil berjast fyrir því að menn sjái ljósið. Ég er sannfærð um að sá tími er liðinn að við eigum að þurfa að upplifa skort á vörum út af því að við erum með tolla og þannig fyrirkomulag. Ég man eftir fréttaviðtali við þá frábæru konu sem er framkvæmdastjóri Krónunnar. Hún sagði: Íslendingar vilja íslenskt og við veljum íslenskt. Af hverju er fólk þá hrætt við samkeppni? Ég spyr: Af hverju eru þeir flokkar sem einu sinni kenndu sig við frelsi hræddir við samkeppni? Af hverju? Af hverju vilja menn ekki breyta þessu kerfi? Við erum stolt af vörunum okkar? Við eigum að treysta okkar framleiðslu og við eigum að búa til kerfi sem styður okkar framleiðslu, styður neytendur. Ég er sannfærð um að það er mikið ákall af hálfu neytenda að við höfum kjark til að fara í slíkar breytingar.
Meginmarkmiðið með frumvarpinu er að auka frelsi og sjálfræði framleiðenda búvara til markaðssetningar á afurðum sínum á innlendum og erlendum mörkuðum. Þess vegna viljum við afnema sérreglu búvörulaga og treysta á samkeppnina og allar hennar hliðarafurðir, nýsköpun, nýliðun, hagræðingu og fleira sem fylgir samkeppni. Í dag, árið 2022, gilda enn sérreglur um mjólkuriðnaðinn. Þess vegna segi ég, og ítreka það sem ég hef sagt, að við trúum á íslenskar vörur, að þær séu samkeppnishæfar. Þess vegna viljum við draga úr afskiptum ríkisvaldsins af verðlagningu, framleiðslu og vinnslu búvara. Ég þurfti að segja fólki það, ekki bara einu sinni og ekki tvisvar, heldur oftar, að við værum enn með opinbera nefnd, verðlagsnefnd búvara, sem ákveður verð á smjöri, rjóma og mjólk. Það má ekki treysta markaðnum til þess. Af hverju ekki? Það að hér sé enn verðlagsnefnd búvara er ekki í takti við nútímann og þær kröfur sem við gerum til gegnsæis, til heilbrigðs samfélags, til heilbrigðis rekstrar, heilbrigðrar samkeppni. Í frumvarpi þessu er því lagt til að verðlagsnefnd búvara og framkvæmdanefnd búvörusamninga verði lagðar niður og þannig stuðlað að jafnræði bænda á markaði og að verðmyndun verði í samræmi við almenn markaðslögmál. Jafnframt er lagt til að felld verði niður heimild til að gera fyrirframákveðna framleiðnikröfu til afurðastöðva eða um einstakar framleiðsluvörur, að láta frekar markaðinn ráða meira.
Við segjum líka, vel að merkja, þannig að menn komi ekki upp hver á fætur öðrum: Samhliða því viljum við breyta styrkjafyrirkomulagi og reyna að auka beina styrki til bænda gegn því að frelsið verði meira. Við höfum ítrekað sagt það hér í þessum þingsal: Afnemum tollana, verðmetum þá, komum að minnsta kosti hluta af þeim styrkjum sem felast í óbeinum styrkjum, í tollum, til bænda. Aukum frekar beina styrki, aukum hvatana til að halda uppi íslenskum landbúnaði á hagkvæman, umhverfisvænan og loftslagsvænan hátt. Ég vil halda því til haga að við viljum ekki minnka styrki til landbúnaðarins heldur breyta því hvernig þeim er úthlutað. Það er algjört lykilatriði að okkar mati að styrkjunum verði beint til bændanna sjálfra þannig að þeir fái sjálfir meiru um það ráðið hvernig þeir vilja haga sinni jarð- og landnýtingu. Við eigum að vera með hvata í styrkjunum sjálfum til nýsköpunar og betri leið að nýtingu landsins sjálfs og gæðum þess.
Ég tel að þarna séu mörg sóknarfæri, ekki síst í tengslum við það hvernig við nýtum landið. Ég er búin að benda á loftslagsmálin, hvernig við hugsum um umhverfismálin, því að fáir ef nokkrir eru betur til þess fallnir að standa undir öflugri stefnu á sviði umhverfis- og loftslagsmála en einmitt bændur sjálfir. Og það þarf að virkja þá í þeirri mikilvægu vegferð sem er fram undan. Við þurfum að gera kerfið skilvirkara. Við þurfum að gera kerfið sanngjarnara. Við þurfum að gera það opnara og við þurfum að gera það í takt við nútímaneysluhætti. Neytendur vilja umhverfisvænar landbúnaðarvörur og þeir velja íslenskt. Til þess verks að þjóna kröfum neytenda eru engir betur fallnir en íslenskir bændur, hvort sem það eru innlendir neytendur eða vinir okkar sem koma í heimsókn sem ferðamenn. Minni ríkisafskipti, einfaldari rammi, einfaldara regluverk, samkeppni, frelsi. Allt er það eins og — ég þori nú varla segja það en segi það samt af því að hér er enginn úr þeim flokki að hlusta á þessa ræðu — stef úr stjórnmálaályktunum Sjálfstæðisflokksins. Samt er það þannig að þingmenn þess flokks standa vörð um núverandi stöðu og vilja ekki heyra minnst á að koma þessu frumvarpi í umræðuna, hvað þá í afgreiðslu hér á þingi. Þetta er alltaf sama sagan. Ég flyt málið hér, það fer í nefnd, það sofnar. Þannig er þetta alltaf. Við dustum rykið af þessu aftur. Þetta er svolítið eins og Þyrnirós sem vaknar alltaf árlega. En við erum enn vongóð um að einhverjir fleiri en við þingmenn Viðreisnar sjáum ljósið, ljós frelsis, ljós neytenda, ljós samkeppni.
Frumvarpið er samið með hliðsjón af gildandi lögum og reglum í nágrannalöndum Íslands, vel að merkja. Í skuldbindingaskrá Íslands að GATT-samningnum er kveðið á um þær skuldbindingar Íslands að veita þjónustuveitendum frá aðildarríkjum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar aðgang að markaði sínum. Þar er jafnframt kveðið á um þær skuldbindingar Íslands að hafa ekki í gildi reglur sem fela í sér mismunun sem sé innlendum þjónustuveitendum í hag gagnvart erlendum þjónustuveitendum.
Virðulegi forseti. Í II. kafla frumvarpsins er lagt til að ákvæði um framkvæmdanefnd búvörusamninga verði fellt brott og lagðar til breytingar sem draga úr sérstöðu Bændasamtaka Íslands sem fyrirsvarsaðila búvöruframleiðenda í samningaviðræðum og samskiptum við ríkið. Við erum að leggja áherslu á að staða bænda sem velja að vera ekki aðilar að Bændasamtökunum verði jafnsterk og þeirra sem eru innan þeirra annars ágætu samtaka. Í 16. gr. frumvarpsins er enn fremur kveðið á um aukinn stuðning ríkissjóðs við umhverfisvernd, nýliðun, skógrækt, lokun framræsluskurða, gerð smávirkjana og þróun á sviði ferðaþjónustu. Þetta eru allt áherslur sem við í Viðreisn, og flutningsmenn frumvarpsins, teljum mikilvægar. Við leggjum einmitt áherslu á þessa þætti, sérstaklega á nýliðunina, skógræktina, uppbyggingu innviða og umhverfisverndina sjálfa. Við þurfum að ræða enn frekar um það hvernig við getum orðið sjálfbær, t.d. varðandi kornrækt, kornhlöðurnar líka, hvernig við ætlum að reyna að ná sem mestri uppbyggingu sjálf í kjarnfóðri. Við teljum að það náist með því að breyta áherslum í styrkjunum innan landbúnaðarins og reyna að stuðla enn frekar að hvötum, sem ýtir þá einnig undir nýsköpun á þessu sviði, jafnvel gerð smávirkjana sem við þurfum sárlega á að halda miðað við þá orkuframleiðslu og það orkuframlag sem nú er. Það er einkar ánægjulegt að sjá hvernig bændur eru að nýta sér nærumhverfið og tæknina og um leið gera sitt að verkum til að ýta undir umhverfisvernd og mikilvægi umhverfismála.
Virðulegi forseti. Ég vona að atvinnuveganefnd fjalli um málið í þetta sinn þó að ég geri mér grein fyrir því að ríkisstjórnarflokkarnir eru með drjúgan meiri hluta í atvinnuveganefnd. Mín reynsla af því er sú að ekki hefur verið fjallað um málið og það hefur ekki fengist afgreitt. Ég vil engu að síður skora á þingmenn sem þar sitja, hvort sem þeir koma úr Skagafirði eða annars staðar að af landinu, að norðan, sunnan eða austan, að hafa kjark til þess að fjalla um málið og stuðla að því að það komist í umræðu. Við höfum það að leiðarljósi að við viljum styrkja íslenskan landbúnað. Við viljum styðja við bændur. Við viljum styðja við neytendur og við viljum styðja við heilbrigða samkeppni. Ef við höfum það að leiðarljósi þá trúi ég ekki öðru en að við getum fundið þá leið sem þarf til þess að breyta þessu landbúnaðarkerfi sem er barn síns tíma. Það styður ekki við nútímakröfur. Við þurfum að gera meira en að uppfæra það, við þurfum að hafa kjark til þess að breyta því.
Ég vil hvetja hv. þingmenn til að taka þátt í þeirri umræðu og ýta málum áfram. Ég vil hvetja nefndina til þess að láta sig málið vaða. Ég geri mér grein fyrir því að það er á brattann að sækja miðað við reynsluna og miðað við samsetningu þingmeirihlutans hér, og það eru jafnvel fleiri sem vilja engu breyta. Ég ætla samt að leyfa mér að halda í vonina og við í Viðreisn munum halda þessum prinsippum á lofti nú sem fyrr.