152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[14:48]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu. Ég skal alveg viðurkenna að ég er ekki búinn að lesa þetta mál stafa á milli en þó er ég aðeins búinn að glugga í málið og vænti þess að það komi, eins og þingmaðurinn kom inn á áðan, til atvinnuveganefndar til afgreiðslu.

Það sem hins vegar vakti athygli mína þegar ég fór að skoða málið voru — eins og hv. þingmaður kom inn á áðan hefur málið verið tekið fimm sinnum fyrir á hinu háa Alþingi — umsagnir þeirra aðila sem starfa í landbúnaði. Með leyfi forseta langar mig að vitna í nokkrar umsagnir, m.a. frá Bændasamtökunum sem gera alvarlegar athugasemdir við frumvarpið og segja m.a.:

„Með vísan til framangreinds leggjast Bændasamtök Íslands alfarið gegn samþykkt frumvarpsins. Verði frumvarpið að lögum mun það hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar en það er ekkert annað en stórtæk aðför að landbúnaðinum í landinu.“

Landssamband kúabænda segir í niðurlagi umsagnar sinnar:

„Að framansögðu leggst Landssamband kúabænda alfarið gegn því að frumvarp þetta verði samþykkt. Samtökin eru reiðubúin að koma til funda nefndarinnar til frekari umræðu og skoðanaskipta.“

Sama má segja, virðulegur forseti, um Landssamtök sauðfjárbænda sem segja að þeir leggist eindregið gegn því að frumvarpið verði samþykkt og í sama streng taka Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði.

Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmenn í kjölfarið, af því að ég er að koma nýr inn í þetta mál, hvort þessar athugasemdir þeirra sem starfa í greininni, starfa í landbúnaði, veki (Forseti hringir.) ekki upp spurningar um hvort hag þeirra sem atvinnu hafa af landbúnaði á landinu sé best borgið með þessu frumvarpi (Forseti hringir.) eins og það er fram komið.