152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[14:50]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni, 1. þm. Norðvest., fyrir fyrirspurnina. Þetta er mjög eðlileg spurning. En það kemur ekkert á óvart að akkúrat þessir aðilar skuli vera mjög á móti þessu máli og það er ekkert óeðlilegt heldur. Þetta eru þeir aðilar sem standa frammi fyrir ákveðnum breytingum og mig rekur ekki minni til þess að þeir hagsmunaaðilar sem koma að máli í breytingaferli hafi tekið þátt í því og viljað gagngerar breytingar á sínu kerfi. Það er ákveðin varðstaða sem felst í þessu. Ég er sannfærð um það. Ég trúi á mátt samkeppninnar. Ég trúi á allar þær hliðarafurðir sem frelsið býður upp á. Við erum með sérreglu í samkeppnislögum og sérreglan er fyrir nákvæmlega þá aðila sem hv. þingmaður vitnaði til. Það er ekkert óeðlilegt þegar maður er með undanþágu frá almennum lögum um samkeppni, þegar menn hafa nokkurn veginn stjórn á markaðnum, að menn vilji viðhalda henni. Það er bara gömul saga og ný. Ég skil vel að þetta kerfi hafi verið byggt upp á sínum tíma en það er bara kominn tími til þess að stíga skrefið.

Ég vil miklu frekar hvetja þessa aðila. Á þeim tíu mánuðum sem ég var ráðherra landbúnaðarmála átti ég mörg samtöl, mjög góð, gagnleg og fróðleg, sem veittu mikla innsýn inn í markaðinn og greinina, þessa mikilvægu grein. Það breytir ekki því að ég vil hvetja nákvæmlega þessa aðila til að horfast í augu við nútímann þegar kemur að framleiðslu, þegar kemur að því hvernig markaðshorfur eru í dag og hvernig við eigum að hlusta á þær kröfur sem við gerum, ekki bara til samkeppni og frelsis heldur líka til umhverfismála, til neytenda. Neytendur eru að mínu mati (Forseti hringir.) svolítið afskipt afurð í öllu þessu máli. Þannig að: Nei, (Forseti hringir.) þrátt fyrir allar þessar umsagnir nákvæmlega þeirra aðila sem óttast mest breytingar (Forseti hringir.) óttast ég ekki að fara í þessar breytingar. Ég er sannfærð um að breytingar (Forseti hringir.) sem fylgja þessu máli eru fyrir almannahagsmuni, (Forseti hringir.) ekki sérhagsmuni.