búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég heyri ekki annað á hv. þingmanni en við séum þó sammála um það, eins og hún kom inn á í ræðu sinni áðan, að vilja styrkja íslenskan landbúnað, enda held ég að það sé alveg gríðarlega mikilvægt verkefni sem við stöndum frammi fyrir, þ.e. að tryggja stöðu landbúnaðar og stöðu íslenskra bænda sem er erfið og snúin. Það er verkefni okkar hér á Alþingi að tryggja að sú staða verði bætt. Mér heyrist hins vegar að okkur hv. þingmann greini á um þær leiðir og aðferðir sem við viljum beita í því.
Ég vil líka, í ljósi þess sem fram kom í ræðu hv. þingmanns áðan, um að menn vilji engu breyta, taka fram að ég held að það sé ekki rétt. Ég er alla vega ekki á (Forseti hringir.) þeim stað. Ég er algerlega á því að þetta kerfi sem við erum með þarna, eins og flestöll kerfi okkar mannanna (Forseti hringir.) sem eru samþykkt hér, séu þess eðlis að að sjálfsögðu eigum við að breyta þeim. Við eigum að hafa kjark og (Forseti hringir.) þor til þess. Það er bara spurning hvernig og þar greinir okkur kannski á.