búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegi forseti. Það er hátíðisdagur hjá mér einnig. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að koma þessari umræðu á og að við skulum ræða hér landbúnað. Ég hef svo sem tekið þátt í þessari umræðu hér áður á öðrum þingum, bæði sem varaþingmaður og þegar ég var hér inni á síðasta kjörtímabili. Öll umræða er af hinu góða og kærar þakkir fyrir það. Vissulega er sýn okkar misjöfn á því hvert við eigum að fara og hvernig við ætlum að komast í mark. Hér erum við að fjalla um frumvarp sem snýr fyrst og fremst að því að taka úr sambandi undanþágu frá 71. gr. búvörulaga, sem snýr að mjólkuriðnaði. Í greinargerð með frumvarpinu, ef ég man þetta rétt, það eru 17 ár síðan þetta var sett á á sínum tíma, sýnir að tilgangurinn með þessu var að styrkja greinina, sem tókst svo sannarlega vel með þessari breytingu. Ég ætla ekki að fara í það að taka eitthvert ákveðið fyrirtæki sérstaklega út úr. En svo er allt sem fylgir því þegar menn fá undanþágu frá 71. gr. búvörulaga. Það er t.d. kveðið á um flutningsjöfnun milli framleiðenda til afurðastöðvar. Það er gríðarlegt mál í stóru landi að framleiðendur búvara sitji við sama borð þegar kemur að því að koma vöru sinni til afurðastöðva. Ég vil beina spurningu til hv. þingmanns: Hvernig sjá þau þetta fyrir sér í frjálsu umhverfi? Hvernig eigum við að fara með bara eitt svona lítið atriði sem snýr að flutningsjöfnun á hrávöru frá frumframleiðanda til afurðastöðvanna?