152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[15:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Áður en ég held lengra vil ég vekja athygli á klukkunni, það virðist ekki vera samræmi í því þegar rauða ljósið kviknar. (SDG: Hún er það aldrei.) Þú þekkir það, hv. þingmaður. En ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Öll erum við sammála um að við viljum sjá leiðir til þess að efla og styrkja. Ég hef verið talsmaður þess að kjötið, sú grein, fari í sama farveg og mjólkuriðnaðurinn er í dag. Það er nú ansi hraustlegur skoðanamunur á milli okkar hvað það varðar. En hvernig sem við horfum á þetta þá erum við með vissa tollvernd en töluverður hluti af þeim vörum sem eru fluttar til landsins, af allri matvöru — ætli það sé ekki 70–80% án tolla. (Forseti hringir.) Við sjáum það líka að við erum í erlendri samkeppni. Það er virk samkeppni á markaði, hv. þingmaður.