búvörulög og búnaðarlög.
Forseti. Það er hlutverk stjórnvalda að skapa jákvæða hvata. Það er ekki jákvæður hvati að hvetja til þess að land sé eyðilagt þannig að ekki sé lengur hægt að nýta það til framleiðslu. Við þurfum að framleiða meira á Íslandi, ekki minna. Það er líka meira að segja hagkvæmt fyrir loftslagið. Hvað er hagkvæmara í umhverfismálum en að við borðum sem mest af íslenskum mat og viðhöldum íslensku fjölskyldubúunum? Að breyta reglunum á þann hátt að styrkja stöðu erlendra verksmiðjubúa sem skaða umhverfið á ýmsan hátt og greiða starfsmönnum þar laun sem við myndum aldrei sætta okkur við, að styrkja samkeppnisstöðu þeirra gagnvart íslensku fjölskyldubúunum og draga um leið úr innlendri framleiðslu, er dæmi sem gengur ekki upp, frú forseti, enda hafa önnur lönd ekki farið þá leið. Hún yrði til þess fallin að kippa stoðunum undan búsetu í stórum hlutum landsins.