152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[15:09]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil einmitt mótmæla því harðlega að þetta kippi stoðum undan hinum dreifðu byggðum landsins. Vill hv. þingmaður meina að þær standi mjög styrkum fótum? Ég held einmitt ekki. Þær fá ekki nægilega mikið frelsi til að ákveða hvernig þær haga framleiðslu sinni og ræktun. Það eru milliliðir í dag sem ráða öllu kerfinu. Bændur hafa minnst áhrif á það hvernig fyrirkomulagið á að vera, minnst. Ég er alveg sannfærð um það, eins og ég gat um áðan, að af hverri krónu sem er ákveðin hér fari stærstur hluti í milliliði og slíkan kostnað en örugglega hlutfallslega minnst til bændanna sjálfra. Ég óttast það. Ég skil ekki að fólk, vel gefnir og framsýnir einstaklingar, skuli ekki treysta samkeppninni og opnara kerfi í þessu máli. Ég trúi því að það muni treysta bændur og muni treysta neytendur og íslenskan markað. Við erum þó sammála um það, við hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, (Forseti hringir.) að við viljum styrkja og efla íslenska matvælaframleiðslu. Það er okkar sameiginlega markmið. Við eigum kannski fyrst að setjast niður og skoða betur hvernig við getum gert það. (Forseti hringir.) Ég vil fara þessa leið og ég skal hlusta á það sem hv. þingmaður vill. Ég vil ekki lok, lok og læs.