152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[15:11]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti og hv. þingmenn og þið sem fylgist með umræðunni. Bóndi er bústólpi. Af bændum erum við komin og að bændum munum við verða, þau sem það kjósa. Ég ætlaði að verða bóndi í rómantískri bernsku minni, fór og nam búskaparhætti, fyrst hér uppi í Borgarfirði á óðali feðranna þar, við Hvítárbakkana, síðan í Danmörku, fæðingarlandinu, þá í Skotlandi og svo loks í Þýskalandi. Af þessum löndum verð ég að segja að mér líkaði best við búskaparhætti hér í þessu landi af ýmsum ástæðum. Ég geri mér grein fyrir því að það er lýðheilsumál, það er hollustumál að snæða og taka sér til munns það sem vex í kringum mann, í nærumhverfi manns. Það heitir makróbíótík á ensku og sem betur fer hallast æ fleiri Íslendingar og aðrir þegnar landanna allt um kring að hollustufæði. Og fæðuöryggi er að sjálfsögðu eitthvað sem við höfum lært að meta hér í mjög óvæntu faraldursástandi og þá kunnum við gott að meta.

Ég held að við séum flest á Íslandi sammála um mikilvægi þess að viðhalda íslenskri búvöru, íslenskum landbúnaði allt landið um kring og að það sé gert með reisn og ábyrgð. Og alltaf vegast á þessi hugtök, frelsi og ábyrgð. Frelsi til að rækta hvað sem er er að sjálfsögðu til staðar. En bóndi sem ætlaði sér að rækta hér exótískt grænmeti eða hvað sem væri, osta eða annað, væri að líkindum ekki mjög ábyrgur heimilisfaðir ef hann ætlaði að gera það upp á eigin ábyrgð í samkeppni við niðurgreidda landbúnaðarvöru þjóðanna allt í kring.

Einhverra hluta vegna þykir það sjálfsagðasti hlutur í heimi að niðurgreiða landbúnaðarvörur, en kannski ekki margt annað. Ég spurði ítrekað að því í þjóðfélagsfræðinámi mínu í háskólanum: Hvers vegna skyldi þetta vera svona? Það voru engin skýr svör við því. Þetta er bara svona. Ég held að við séum sammála um að það beri að styrkja íslenskan landbúnað, en við erum ekki sammála um hvernig það skuli gera. Og hvað gerum við þá? Þá sammælumst við um sáttaferli allra aðila málsins, allra flokka á þingi og þeirra sem málið varðar mest, bændanna sjálfra, bæði félagsbundinna samtaka bænda og annarra, neytendanna og þeirra sem vilja láta sig málið varða.

Þetta hefur verið þrætuepli. Bændur hafa verið málaðir upp sem einhver hrakmenni, einhverjir betlistafsmenn, fyrir það að hér hafi verið búvörustyrkir og búvörulög. Ég ákvað eftir að hafa kynnt mér búskaparhætti fjögurra landa með stuttu millibili að gerast ekki hefðbundinn bóndi heldur geisladiskabóndi án nokkurra styrkja eða niðurgreiðslna. Það held ég að hafi verið raunhæft á þeim tíma. Ég held að ýmsir hafi áhuga á búskap en kjarkinn og kraftinn þarf auðvitað að hafa líka og stoðkerfið þarf að vera í lagi, sem segir að við þurfum auðvitað að tryggja öflugan íslenskan landbúnað, fæðuöryggi og hollmeti handa öllum þannig að vel verði við unað.

Það eru margir ágætir punktar í því frumvarpi sem hefur verið kynnt og þá ekki í fyrsta skipti, sem við blasir í dag. En um það er ekki mikill samhljómur, það ég heyri, að hleypa því í gegn sisvona. Þá held ég, um leið og ég þakka fyrir þá góðu ræðu sem fylgdi þessu úr hlaði í dag og öll þau góðu orð sem hér hafa verið sögð, að sáttaferlið sé óumflýjanlegt. Ég sagði það hér fyrir um viku síðan að sáttaferli þurfi að hleypa af stokkum, ekki bara hvað varðar landbúnað heldur einnig sæbúnað, vegna þess að á sjó er sótt og hefur verið gert hér frá örófi, en það ríkir engin sátt um það hvernig við högum þeim málum.

Þó að ég geti verið opinn fyrir margs konar hugmyndum um það þá er ég fyrst og fremst að horfa til þess að við náum sáttinni. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það mun ekki gerast svo glatt í þessum sal. Víðtækara samtal þarf að eiga sér stað og við þurfum að viðurkenna að við ætlum ekki að bjóða upp á það til margra áratuga í viðbót að útvegsmenn og bændur séu uppmálaðir sem einhver hrakmenni eða sníkjudýr sem hafi óréttilega fengið það sem þeir fá. Við þurfum að taka þessa ferla til endurskoðunar og gera það með opnum og jákvæðum huga vegna þess að við viljum viðhalda bæði landbúnaði og útvegsstarfsemi þannig að ábati og hollusta hljótist af, sem og lýðheilsa og fæðuöryggi og að almenn sátt ríki.

Þá er aftur komið að því: Hvernig komumst við á þann stað? Menn eru hér í ævafornum farvegi hver og einn. Ég lít á það dálítið eins og í íþróttunum, sem hv. þingmaður Viðreisnar, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þekkir nú betur en ég, fólk getur keppt með FH eða KR eða Val, það er hægt að velja sér lið. Oft er það nú bara hvar fólk ólst upp. Ég held að við eigum að drífa okkur öll upp úr hvers kyns skotgröfum, vera öll opin fyrir því að hér megi gott bæta, hér megi nútíminn verða boðinn velkominn, markaðslögmál, samkeppni í bland við stoðkerfi og hvetjandi umhverfi.

En það sem blasir við mér í tengslum við landbúnað á Íslandi er það sem dró Ingólf Arnarson að landi hér við Faxaflóa. Það er orkan sem skapaði reykinn sem Reykjavík er nefnd eftir. Það er jarðvarminn, eða fallvötnin, eins og það er í bland í dag. Það er sú sjálfsagða orka til að hlýja okkur, baða okkur og knýja áfram atvinnulífið. Þau orkuver hafa verið reist og niðurgreidd, margfaldlega í mörgum tilfellum. Íslensk raforka til grænmetisframleiðslu eða annarrar matvælaframleiðslu á að vera sem næst kostnaðarverði að mínu mati. Það voru fyrirheitin þegar fjárfest var í öllum virkjununum. Þannig að íslenskir bændur eiga að fá raforku miklu ódýrari en í boði er í dag. Það er númer eitt.

Svo er annað sem við getum horft til og ég hef minnst á áður, sem er vörumerkjaþróunin. Horfum til Frakklands í þeim efnum; Brie-ostanna, Champagne-drykkjanna, baguettanna. „Bröndunin“ á búvöru Frakka nær um gjörvallan heim. Ég get fullyrt að hreinlæti í landbúnaðarframleiðslu er ábótavant í ýmsum löndum sem við berum okkur saman við. Ég held að við séum almennt hreinlát og samviskusöm í framleiðslu okkar á matvælum. Ég sé fyrir mér að græna eyjan hér í hánorðri eigi og megi og verði, ef rétt er á spöðum haldið, eftirsóknarverðasta matvælafabrikka heimsins, við endimörk hins byggilega heims, er stundum sagt. Uppskerutíminn er skemmri en víðast en fæðan er kannski kraftmeiri, framleidd með ábyrgari og betri hætti. Við viljum viðhalda henni.

Komum okkur í sáttaferlið sem allra fyrst. Tökum mið af því sem hér hefur verið lagt til í dag og tökum mið af sjónarmiðum allra sem að vilja koma þegar við förum í það sáttaferli. Við þurfum ekki endilega að spyrja leyfis hér í þessum sal, við getum hafið það, bara þau sem hér sitja og boðið svo öðrum með. Það getur orðið löng og ströng og erfið vinna. En ekki myndi ég láta mitt eftir liggja ef í boði væri.

Þá segi ég nú bara að endingu á þessum nótum:

Búvöruna bröndum

og bætum vinnulag.

Inn í málið vöndum

og eflum bændanna hag.

(Gripið fram í: Heyr, heyr.)