búvörulög og búnaðarlög.
Frú forseti. Það er búið að vera gott að fylgjast með og gaman að þetta mál hafi ratað á dagskrá. Ég þakka flutningsmanni, hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, kærlega fyrir hennar ræðu hér áðan og vísa sérstaklega í það að hún rakti ágætlega hvers vegna farið var af stað í þessa vegferð og ekki í fyrsta sinn eins og menn þekkja og hafa svo sem vísað til í umræðunni. Ég vildi kannski botna betur smá pælingu sem kom fram áðan hjá hv. flutningsmanni.
Ég var mjög hugsi í kosningabaráttunni miðri þegar við allt í einu fáum fyrirsagnir á síðum blaðanna og á vefmiðlum þar sem komin er upp sú staða að skortur er orðinn á tilteknum tegundum grænmetis. Ég er enginn sérstakur áhugamaður um sellerí, ég er áhugamaður um brokkolí, en það var skortur á þessum grænmetistegundum um tíma. Fyrir mér er ansi margt sem kristallast í þessari stöðu. Maður verður að velta því fyrir sér hvort kerfi sem býr til skort geti verið gott kerfi. Getur það kerfi sem býr til þá stöðu að neytendur hafi ekki aðgang að hollustu, sem við erum að reyna að ýta að börnunum og okkur sjálfum, kerfi sem býr til skort á þessu, verið gott kerfi? Ég held að það þurfi ansi mikla sjálfsblekkingu til að menn geti sagt: Já, þetta er gott kerfi. Ég held að enginn hafi farið af stað í þá vegferð þegar þetta kerfi var búið til og sagt: Við ætlum að hafa skort á tilteknum vörum þegar fram líða stundir. Þannig gerist iðulega í kerfum sem eru mjög miðstýrð og ég er að tala um stóru myndina af því þetta er auðvitað bara ein varða á leiðinni til aukins frelsis þegar kemur að matvælaframleiðslu á Íslandi, að kerfi sem í upphafi eru búin til og eiga að þjóna atvinnugrein missa oft sjónar á því að á hinum endanum eru þeir sem eiga að njóta afurðanna sem eru matvæli. Þannig hefur mér því miður oft fundist landbúnaðarkerfið á Íslandi vera. Mér finnst það sama eiga við um sjávarútvegskerfið og mér finnst það líka eiga við að hluta til um almannatryggingakerfið, að við erum einhvern veginn búin að missa sjónar á endapunktinum sem er neytandi eða notandi tiltekinnar þjónustu, kaupandi vörunnar. Auðvitað eigum við að huga að hinum þáttunum líka, af því ég sé að hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson horfir á mig og heldur að ég sé að gleyma því, það er ekki þannig. Við eigum auðvitað að huga að öllum þessum þáttum. En kerfið hugaði ekki nógu vel að því í upphafi og þegar við erum komin með svona mikla miðstýringu, þegar það skortir svona mikið upp á frelsi, alveg sama hvort við erum að tala um grænmeti, mjólk eða kjöt eða hvað það er, þá lendum við í þessari stöðu að það koma upp einhverjar skortstöður. Það koma upp einhverjir agnúar vegna þess að ekki er nógu vel gætt að lögmálum um framboð og eftirspurn, eðlilegum samkeppnislögmálum, svigrúmi þeirra sem framleiða, svigrúmi þeirra sem flytja inn. Þetta er svona stóra myndin í þessu hvað mig varðar.
Hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson kom inn á það í andsvari áðan og var að velta því upp hvort við hefðum lesið umsagnir um málið sem bárust á sínum tíma þegar frumvarpið var lagt fram. Þá fannst mér hann svolítið handvelja umsagnir sér til stuðnings vegna þess að ég renndi yfir þetta á sínum tíma og svo aftur núna. Ég get til að mynda nefnt umsögn frá Félagi atvinnurekenda. Þar er hvatt til þess að þetta verði samþykkt, að þessar breytingar séu til mikilla bóta og til þess fallnar að stuðla að aukinni samkeppni og miklum ábata neytenda. Þar er komið inn á samkeppnislagabrotin sem teljast almennt til refsiverðrar háttsemi.
„Um er að ræða athæfi sem samfélagið hefur talið svo ámælisvert að það sæti refsingu þeirra sem verða uppvísir að því. Það hefur því sætt langvarandi furðu að slík brot ákveðinna aðila séu undanþegin refsingu þessari enda algerlega á huldu hvernig afleiðingar þeirra og eðli eru í þessum tilfellum frábrugðin því sem almennt á við. Með umræddu frumvarpi er bætt úr þessum meinbug á núverandi lögum. Þar með er stuðlað að auknu jafnræði, aukinni samkeppni og bættri almennri réttarvitund.“
Þetta held ég að séu orð að sönnu og það er einnig hægt að tiltaka umsögn Samkeppniseftirlitsins við frumvarpið, það eftirlit sem heldur betur hefur nú séð um að gæta hagsmuna almennings þegar kemur að samkeppnismálum.
„Samkeppniseftirlitið telur að frumvarpið muni efla samkeppni í landbúnaði og veita bændum frelsi til að hafa val um hvernig afurðum þeirra væri ráðstafað. Slíkt myndi leiða til aukinnar samkeppni á vinnslu-, heildsölu- og smásölumarkaði, sem hefur jákvæð áhrif á nýsköpun á umræddum mörkuðum.“
Þetta er auðvitað hryggjarstykkið í því sem við erum að leggja til með þessu máli. Við erum ekki að leggja eitthvert pottlok ofan á bændur, við erum ekki að berjast fyrir einhverju sem rýrir kjör bænda, algerlega þvert á móti. Við erum einfaldlega að reyna að tryggja að samhliða bættum og betri kjörum bænda sé hinn endinn, hagur neytenda, tryggður með sama hætti.
Það kemur líka fram í umsögn Samkeppniseftirlitsins svo ég haldi því til haga og þetta eru svolítið áhugaverð orð sem ég held að við ættum öll að hlusta eftir:
„Hefur Samkeppniseftirlitið orðið vart við þau sjónarmið bænda að þeir líti fremur á sig sem launþega en atvinnurekendur. Þetta sjónarhorn kom m.a. sterkt fram fyrir u.þ.b. áratug þegar Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að samráð hefði átt sér stað á vettvangi Bændasamtakanna um verðlagningu tiltekinna búvara sem lutu frjálsri verðlagningu. Þá var því haldið á lofti að staða bænda væri líkari stöðu launþega en atvinnurekenda.“
Svo kemur kjarninn:
„Ein ástæða þessa rótgróna viðhorfs er að líkindum sú staðreynd að mikilvægar búvörur hafa í gegnum tíðina lotið opinberri verðlagningu. Önnur ástæða kann að vera sú að bændur eru á ýmsan hátt þiggjendur í því umhverfi sem þeir starfa. Þar er ekki bara átt við að þeir njóti opinbers stuðnings við framleiðslu sína heldur hafa þeir, hver og einn, mjög lítil áhrif á það hvernig afurðum þeirra er ráðstafað. Möguleikar þeirra til aðhalds með kjötafurðastöðvum er lítið nú þegar eignarhald á þeim hefur gengið þeim úr greipum að miklu leyti. Veik staða bænda gagnvart kjötafurðastöðvum birtist m.a. í því að nú í haust var sláturtíð vel á veg komin þegar bændum voru gefin upp verð á afurðum sínum.“
Þarna er ég að vitna til þessara orða, þessara almennu raka sem koma fram um að bændur hafi meira sjálfdæmi um hvernig þeir haga sinni framleiðslu, hvernig þeir dreifa henni, hvernig þeir selja hana og að ekki verði þessar hömlur á innflutningi sem myndu ýta undir þessa samkeppni. Menn hafa verið að tala um það hér að ef tollverndin yrði felld niður, eða a.m.k. verulega dregið úr henni, myndu Íslendingar allir flykkjast í eitthvað innflutt. Það held ég ekki. Þetta snýst í raun og veru ekki um það. Ég held að Íslendingar vilji íslenskar landbúnaðarafurðir, ég a.m.k. kýs það sjálfur. Ég vil helst drekka rjóma með lambakjötinu mínu og það mun ekkert breyta því en þegar kemur að ýmsum afurðum úr mjólkinni, ostum og öðru slíku, þá væri betra vöruúrval að mínu mati heppilegra.
Aðalatriðið er að við séum ekki með þetta kerfi sem þarf svona mikið utanumhald. Hver einasti landsmaður borðar það sem bændur framleiða á hverjum einasta degi, oft á dag. Það er alveg gríðarlegur markaður fyrir þessar afurðir og ég geri mér alveg grein fyrir því að framleiðsluhættir og lega landsins og alls konar svona hlutir geta auðvitað haft áhrif á að það getur verið erfiðara að framleiða sumt og annað ekki og það allt saman. En þessi almennu lögmál, um aukið frelsi og aukna samkeppni, eiga við í landbúnaði eins og öllum öðrum greinum. Það held ég að sé hafið yfir allan vafa.
Ég myndi vilja koma aðeins inn á og vísa í það sem var verið að segja áðan, þ.e. að við erum með ríkisstjórn við völd sem er sett saman um ákveðna hagsmuni. Varðstaðan um kerfið sem er undir í þessari umræðu er ein af lykilforsendum þess að efnt var til þessa ríkisstjórnarsamstarfs. Varðstaðan um þetta kerfi og mörg önnur kerfi. Ég er ekki sammála því sem kom fram hér hjá hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að enginn þessara þriggja flokka sé Framsóknarflokkur. Framsóknarflokkurinn er vissulega mjög ágætur flokkur en hann er á miklum villigötum og hefur lengi verið þegar kemur að landbúnaðarmálum og því miður eru allir flokkarnir framsóknarflokkar þegar kemur að þessari ágætu atvinnugrein sem við viljum öll svona vel.
Ég vonast til þess að þetta mál fái góða og öfluga umfjöllun í nefndinni og komist aftur hingað inn og við náum enn meiri og víðtækari umræðu um það. Ég vil árétta, af því að okkur í Viðreisn er stundum legið á hálsi fyrir að vera sérstaklega í nöp við bændur, að það er auðvitað ekki málið svo að ég undirstriki það enn frekar. Við erum algerlega sannfærð um að breyting á kerfinu muni bæta kjör bænda og bæta kjör neytenda, sem er það sem málið snýst um. Kerfi þar sem þeir sem sjá um framleiðsluna eru í mörgum tilfellum ósáttir við kjör sín og neytendurnir sem kaupa afurðirnar eru ósáttir við verðið er ekki gott kerfi. Það er eitthvað í keðjunni sem virkar ekki. Ég legg til að þeir sem vilja standa svolítið sterklega vörð um núverandi fyrirkomulag skoði þetta mál með mjög svo opnum hug og hafi hugfast að fyrir okkur vakir ekki neitt annað en að bæta þjóðarhag og hag þeirra stétta sem eru undir í kerfinu og neytenda allra.