búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir ræðuna. Mig langar að koma nokkrum spurningum til hans. Við höfum rætt hér aðeins um sellerí og brokkolí og það sem gerðist hér síðastliðið haust. Nákvæmlega eins og er með ýmsar aðrar landbúnaðarvörur þá er ákveðin tollvernd og síðan eru gluggar á milli þar sem tollverndin er ekki til staðar. Þegar þetta var endurskoðað fyrir tveimur árum var settur stór lokaður gluggi yfir ákveðið tímabil til að verja ákveðna framleiðslu. Síðan reyndist sú innlenda framleiðsla bara ekki vera fyrir hendi, svo að það sé sagt. Þessu var kippt í liðinn, ef ég man rétt, núna um áramótin eða rétt fyrir áramót. Vissulega er það alltaf þannig í öllu því sem við erum að fjalla um, sama í hvaða flokki við erum — og ekki ætla ég að sverja af mér uppruna minn þegar menn eru Framsóknarmenn, þó að menn séu kannski taldir til afturhaldsafla, annað sýndi nú niðurstaða kosninganna alla vega, það eru þá fleiri sem taka undir með okkur í því. En í þessu samhengi langar mig að beina því til hv. þm. Sigmars Guðmundssonar: Segjum sem svo að við afnemum 71. gr. búvörulaga sem snýr að mjólkuriðnaðinum, við erum bara að fjalla um það, þetta er eina búgreinin sem hefur þessa undanþágu, það er bara mjólkuriðnaðurinn, og afnemum tollana líka. (Forseti hringir.) Hvað þarf þá að greiða til bænda í staðinn ef við tökum þetta í burtu?