152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[15:36]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég þekki forsöguna varðandi grænmetisskortinn og einmitt tollverndina og glugga og það þurfti að koma inn í þingið og laga. Það er þetta sem ég er að gagnrýna. Þetta er kerfi sem mér finnst ekki vera sérstaklega skilvirkt. Af því við erum að handstýra þá getum við ekki séð fyrir allt sem getur gerst og ef innlendir framleiðendur ná ekki að halda í við þá á glugginn auðvitað að vera opinn almennt til þess að bæta þar úr. Þannig að ég þekki þessa forsögu. Ég er bara að segja að kerfi sem er þannig hannað að það sé tollvernd og að þar komi gluggi og að þingið þurfi að koma og kippa því í lag er ekki gott kerfi. Það er ekki skilvirkt. Það er það sem við viljum breyta og margt af því sem við erum að ræða í tengslum við þetta mál snýr auðvitað að landbúnaðarkerfinu okkar í miklu stærra samhengi en því. Ég trúi því að þegar fram líða stundir, ef við gefum meira frelsi, sama hvaða grein er undir, séu það bara lögmálin um framboð og eftirspurn sem eiga við. Þetta er líka lögmálið um hagkvæmni bænda, hagkvæmni framleiðenda, hagkvæmni þeirra sem selja og dreifa. Smátt og smátt lagar hin eðlilega hringrás sig að breyttum forsendum. Og það er ágætt að nefna það í samhengi við þessa tilvitnun í umsögnina sem ég kom inn á áðan. Við erum orðin svo vön því að það þurfi að stýra og þurfi að vera gluggar og þurfi að vera tollvernd og stuðningur, beinn stuðningur, óbeinn stuðningur, að okkur tekst einhvern veginn ekki að koma okkur inn í þá hugsun að um þetta geti gilt það sama og í öðrum viðskiptum og annarri framleiðslu. (Forseti hringir.) Hugsunin um það er okkur einfaldlega of framandi, held ég, en það eru engin önnur hagfræði- eða efnahagslögmál (Forseti hringir.) sem gilda í þessu en í öðrum atvinnugreinum. Um það er ég alveg sannfærður.