búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegur forseti. Ég fékk ekki svar við spurningunni sem ég bar upp varðandi fjármunina sem til þarf vegna þess að í framsögu hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur kom fram að við þyrftum að bæta í stuðninginn í staðinn fyrir að taka þetta af. Því spyr ég aftur: Hvað erum við að tala um mikla fjármuni? Í dag eru þetta sirka 6 milljarðar til mjólkurframleiðslunnar, eitthvað svoleiðis. Þeir ganga vissulega að stærstum hluta til bænda, þeir fara ekki til milliliða. Það eru 4–5 milljarðar í sauðfé. Spurningin er bara: Hvað þurfum við mikið til þess að bæta upp í staðinn fyrir þetta? Vegna þess að þetta er bara hluti af starfsskilyrðum greinarinnar til þess að hún geti keppt við aðrar sambærilegar greinar erlendis. Við þekkjum það öll sem viljum þekkja það að það er ekkert mjög langt að fara á milli yfir Atlantshafið með vörur, tiltölulega einfalt mál. Ég og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson fórum og fengum okkur að borða í gær á fínum stað hér í höfuðborginni og borðuðum dásamlegt nautakjöt frá Danmörku. Þetta er allt fyrir hendi. En tilgangurinn með því sem væri verið að gera varðandi 71. gr. búvörulaga og undanþágu frá því, tollana og það — þetta eru ákveðin starfsskilyrði sem við setjum fyrir greinina til að verja innlenda framleiðslu. Hún er síðan í samkeppni við innflutning, framleiðslu sem er kannski við allt önnur starfsskilyrði og er undanþegin ákveðnum tollum í heimalandi sínu og stutt við hana. (Forseti hringir.) Þannig að spurningin er: Ef þetta er allt afnumið, hvað þurfum við að bæta í (Forseti hringir.) í peningum til þess að menn geti staðist samkeppnina?