152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[16:05]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við skulum hafa einn hlut alveg á hreinu. Það er ekki opinber verðlagning á neinni annarri landbúnaðarvöru nema mjólkurafurðum, ekki lambakjöti eða grísakjöti eða alifuglakjöti eða hvað sem er. Ég þekki þessa umsögn Samkeppniseftirlitsins ágætlega og ég ætla að vera alveg heiðarlegur í mínu svari: Ég er henni bara alveg ósammála. Ég sé hlutina á annan hátt heldur en Samkeppniseftirlitið sér þá, með þessum augum. Það má vel vera að maður sé afturhaldsseggur og Framsóknarmaður, þó að ég vilji ekki viðurkenna það, en ég sé ekki aðra leið í augnablikinu heldur en þá að við erum á þessum stað sem við erum að tala um hér í dag, við mótum ákveðin starfsskilyrði í kringum landbúnaðarframleiðsluna eins og hún er hjá okkur, og hvernig sem það er, hvort við þurfum að hafa þessa undanþágu frá 71. gr. búvörulaga á öllu eða ekki, þá er grundvallaratriðið það að menn geti hagrætt í sínum rekstri. Við verðum líka að fara að átta okkur á því að við erum 360.000–370.000 á þessu landi, með smáfyrirtæki keppandi síðan við risafyrirtæki hjá milljónaþjóðum. Samkeppnismunurinn er allt annar, hvort sem við horfum á legu landsins eða eitthvað því um líkt. Hagkvæmnin í greininni — við þurfum að hafa tækifæri til að geta hagrætt innan greinarinnar og hvort við séum með opinbera verðlagningu eða eitthvað annað þá er það ekki stóra málið í því samhengi.