152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[16:10]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svo sannarlega, hv. þm. Jakob Frímann Magnússon, er nýsköpun eitt af því sem við eigum alltaf að vera í. Fyrst við erum að fjalla um nýsköpun get ég ekki annað en horft til Mjólkursamsölunnar. Ég held að það sé óhætt að segja að þar hafi menn verið ansi duglegir við nýsköpun nú seinni árin. En við skulum líka hafa eitt á hreinu. Það er margt sem gerði það að verkum að fyrirtækið gat farið í þá nýsköpun. Jú, það voru ákveðin starfsskilyrði sem voru sköpuð í kringum iðnaðinn en síðan verður líka að hafa í huga, sem er svolítið áhugavert í þessu samhengi, að innflutningur ýtti svolítið við þeim. Það undirstrikar kannski hluta af málflutningi hv. þingmanna hér í dag, Sigmars Guðmundssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, að á sínum tíma þegar til varð samkeppni og verið var að flytja inn Pascal-jógúrt, minnir mig það heiti, varð það til þess að fyrirtækið — jú, það var búið að skapa ákveðin starfsskilyrði fyrir það — fór á fullt í alls konar nýsköpun og vöruþróun. Við getum bara séð það þegar við förum í búðir, í mjólkurkælinum og þess háttar, að alltaf er eitthvað nýtt að gerast í mjólkuriðnaðinum og nýjasta afurðin er náttúrlega á skagfirska efnahagssvæðinu þar sem menn eru farnir að framleiða vínanda úr mysu.