búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir sitt andsvar. Ég er búinn að benda á einhverjar leiðir. Sáttaleiðin, með stóru essi, er það sem mér finnst blasa við vegna þess að ég er ekki viss um að við náum sátt um neitt í þessum sal. Ég held að við þurfum stærri vettvang, fjölmennari, sem nær til allra lykilþáttanna. En ég hef líka bent á vörumerkjaþróun, orkuverð og nú nýsköpun. Úr því má stafa orðið von, vörumerkjaþróun, orka, nýsköpun. Það er von fyrir íslenskan landbúnað og búvöru. Það eru 3 milljarðar sirkabát í nýsköpunarsjóðum hér á vegum ríkisins og annað eins, ef ekki meira, í alls kyns sjóðum öðrum. Ég myndi leggja áherslu á að við horfum til nýsköpunar í víðara samhengi en mjólkurframleiðslu, skyrframleiðslu og nú vínanda úr mysu, það er sannarlega frábært dæmi um nýsköpun. Ég held að við ættum að gefa í, sókn er besta vörnin og þá má alveg segja að við þessar aðstæður er sauðfjárbúskapur í vörn og ýmis önnur tilbrigði búskaparhátta á Íslandi. Sumum útlendingum finnst með ólíkindum að hér skuli yfir höfuð vera stundaður búskapur. Það eru þeir sem þekkja ekki nægilega vel til.
Ég segi: Það er von og göngum til víðtækra sátta um framhaldið þannig að enginn þurfi að vera með kvíðahnút í maganum yfir tilhugsuninni um að gerast bóndi á Íslandi eins og sá sem hér stendur var með þegar hann var 19 ára.