152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

búvörulög og búnaðarlög.

118. mál
[16:14]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það var svo sem ekki mikið um beinar spurningar en góðar og fallegar hugmyndir sem þarna komu fram. Vissulega er alltaf von í því sem við erum að gera. Ef við höfum ekki vonina er eins og menn hafi ekki trú á einhverju og þá er hlutunum sjálfhætt. Þannig hugsa ég hlutina svona frekar einfalt. Það er vissulega von í landbúnaðarframleiðslu á Íslandi í heild sinni en hún er ekki eingöngu bundin við ær og kýr, svo langt í frá. Við eigum að bæta í á öllum sviðum, hvort sem það er í mjólkurframleiðslu, kjötframleiðslu, grænmeti, kornrækt o.s.frv. Við búum á landi sem stundum getur verið okkur ansi harður húsbóndi, hvað varðar náttúrufar og annað, en það er líka gjöfult. Við höfum alveg tækifæri hér með raforku, með ylrækt, með bættum kynbótum á korni og höfrum og fleiri afurðum, til að stórbæta framleiðsluna. Grundvallaratriðið verður alltaf það sama, til þess að það geti átt sér stað þurfum við að skapa ákveðin starfsskilyrði í kringum framleiðsluna til þess að hún geti verið samkeppnishæf við framleiðsluna erlendis frá.