152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[16:17]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Á bak við meginreglu starfsmannalaga um auglýsingaskyldu við skipun í opinber embætti búa mjög mikilvæg sjónarmið, m.a. um jafnræði borgaranna, að þeir sem hafa hug á tilteknu opinberu starfi eða embætti skuli eiga kost á að sækja um það. Frá þessari almennu reglu eru mjög fáar og afmarkaðar undantekningar, m.a. 36. gr. starfsmannalaga. Eins og ég nefndi hér í dag skiptir miklu að Alþingi sendi skýr skilaboð um að slíkar undanþáguheimildir skuli túlkaðar þröngt. Það á ekki að leika sér með þær, hvorki framkvæmdarvaldið né löggjafinn. Ef við skoðum bréf umboðsmanns Alþingis til menningarráðherra sjáum við að þar er gert ráð fyrir að flutningur ríkisendurskoðanda hafi byggt á síðari málslið 1. mgr. 36. gr. starfsmannalaga, um flutning úr einu embætti í annað. En nú er komið í ljós að ráðherra og þingforseti byggðu á síðari málslið 2. mgr. sömu greinar, nýrri málsgrein sem var sett inn í lögin árið 2016, þar sem er fjallað um flutning úr embætti yfir í starf. (Forseti hringir.) Ég held að engum hér á Alþingi hafi dottið í hug árið 2016 að þessi heimild yrði notuð til að selflytja embættismann (Forseti hringir.) sem hefur verið kosinn af Alþingi til að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu yfir í embætti sem heyrir undir framkvæmdarvaldið. (Forseti hringir.) Ég held að enginn hafi haft hugmyndaflug í það.

(Forseti (JSkúl): Forseti biður ræðumenn að stilla tímanum í hóf samkvæmt tímamörkum.)