152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[16:18]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég ætla að taka undir orð hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar og finnst gott hjá honum að hafa verið að hreyfa við þessu máli undanfarna daga. Ég myndi kannski líka, úr því að við erum að ræða hvar mörk og skil liggja á milli löggjafar- og framkvæmdarvalds, vilja fá að hamra það járn sem hefur verið hamrað hér síðustu daga; það er að við erum enn að bíða eftir svörum og skýringum á því af hverju innanríkisráðherra, innanríkisráðuneytið og Útlendingastofnun eru að meina Alþingi að fara að lögum þegar kemur að því að veita ríkisborgararétt. Ég ætla að beina þeirri áskorun til forseta að því máli verði haldið vakandi. En aftur: Ég tek heils hugar undir þau sjónarmið og þær áhyggjur sem hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson viðraði áðan og það verður ekki bara spennandi og áhugavert að sjá bréfið sem umboðsmaður sendi, það verður virkilega áhugavert að sjá hvaða svör berast við erindum.