152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[16:20]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég vil einnig þakka fyrir það að hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson skuli halda þessu máli á lofti af því að þetta er stórmál. Þetta snýst einmitt um valdmörk ríkisvaldsins, þrígreiningu ríkisvaldsins. Það er ekki þannig að ráðherra geti eftir hentugleika farið yfir þessi mörk.

Ég er með mikla fyrirvara, ég bind náttúrlega vonir við að þessu verði svarað, að umboðsmanni Alþingis verði svarað hið fyrsta. Sem lögfræðingi finnst mér við fyrstu sýn — ég ætla ekki að gera athugasemdir við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra en ég hef verulegan fyrirvara á því sem menningar- og viðskiptaráðherra er að gera. Þar eru mörkin að mínu mati orðin miklu meira en óljós. Þar er verið að fara yfir ákveðin skýr mörk sem þarf að virða en við þurfum að bíða og sjá hvað kemur út úr þessari skoðun umboðsmanns Alþingis. En það virðist vera að það séu miklir erfiðleikar og mikil brekka af hálfu menningar- og viðskiptaráðherra þegar kemur að því að reyna að velja sér ráðuneytisstjóra.