um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmönnum Sigmari Guðmundssyni og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og þakka þeim fyrir að setja þetta mál í stærra samhengi. Ég er satt best að segja með óbragð í munninum og hef áhyggjur af því hvernig ráðherrar ríkisstjórnarinnar umgangast starfsmannalög við uppskiptingu Stjórnarráðsins, bæði hvað varðar setningu ráðuneytisstjóra án auglýsingar í nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti — sem er nota bene ný staða, hana á að auglýsa nema einhverjar sérstakar aðstæður réttlæti annað — og þessa skipun ráðuneytisstjóra án auglýsingar í nýtt menningarráðuneyti. Ég leyfi mér að mótmæla því harðlega að Alþingi sé dregið inn í þá atburðarás, þá skipun, með þeim glannaskap sem hér hefur verið viðhafður og fordæmi þetta. Þetta fellur illa að prinsippinu um þrískiptingu ríkisvalds. (Forseti hringir.) Þetta er ekki til þess fallið að auka virðingu og trúverðugleika Alþingis og þeirra eftirlitsstofnana sem starfa á vegum þess.