152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[16:22]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefndi uppskiptingu Stjórnarráðsins og þá atburðarás alla sem við fórum í gegnum á dögunum og við erum einmitt að tala um samskipti löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins, mörk þar á milli og kannski líka þá að einhverju leyti upplýsingagjöf þar á milli. Þá finnst mér full ástæða til að viðra það, úr því að hv. þingmaður snerti á því áðan, að það er mjög gagnrýnisvert þegar við erum að ræða og afgreiða þingsályktun um Stjórnarráðið, uppskiptingu Stjórnarráðsins og það hvernig ríkisstjórnin vill haga þeim málum, að góðar, ítarlegar upplýsingar um kostnað séu afhentar hér eftir fyrirspurn þingmanns, eftir að við erum búin að afgreiða málið. Ekki á meðan við erum að afgreiða málið, þannig að það geti verið fóður inn í hina efnislegu umræðu, heldur eftir á. Það er því full ástæða fyrir forseta að gefa þessum þremur málum gaum, fyrsta málinu sem hv. þingmaður hreyfði hér áðan, (Forseti hringir.) líka samskiptum innanríkisráðherra við allsherjar- og menntamálanefnd og svo því sem ég nefndi hér, (Forseti hringir.) að sjálfsagðar upplýsingar liggi fyrir á meðan við erum að taka efnislega afstöðu til mála en ekki eftir á.